Viðskipti innlent

Íslendingar kaupa hótelkeðju með D’Angleterre innanborðs

Gísli Þór Reynisson og félagar hans í Nordic Partners hafa keypt hið sögufræga Hotel D'Angleterre.
Gísli Þór Reynisson og félagar hans í Nordic Partners hafa keypt hið sögufræga Hotel D'Angleterre. SAMSETT MYND

Íslenska félagið Nordic Partners hefur fest kaup á dönsku hótelkeðjunni Remmen Hotels. Hemildir Vísis herma að kaupverðið sé einhvers staðar á bilinu 15 til 20 milljarðar íslenskra króna. Aðalhótelið í keðjunni er hið sögufræga Hotel D'Angleterre sem er einn af gimsteinum Kaupmannahafnarbúa. Auk þess eru hótelin Front og Hotel Kong Fredrik í keðjunni ásamt veitingastaðnum Copenhagen Corner við Ráðhústorgið.

Samkvæmt heimildum Vísis hafa samningaviðræður staðið í marga mánuði en seljendurnir eru roskin dönsk hjón. Búast má við því að Danir verði ekki allt of hrifnir af því að missa hótel eins og D'Angleterre í íslenska eigu en það hefur fyrir löngu unnið sér sess í hjörtum Dana líkt og Magasin Du Nord sem Baugur keypti árið 2004. Slíkt er mikilvægi hótelsins að jólin eru ekki komin í Kaupmannahöfn fyrr en búið að er að kveikja á jólaseríum á hótelinu. Það er kannski frægast á Íslandi fyrir að vera hótelið sem Eggert Magnússon, formaður KSÍ, gisti á ásamt fylgdarliði fyrir landsleik Dana og Íslendinga haustið 2001.

Nordic Partners hefur vaxið gífurlega undanfarin ár aðallega í fasteignum og matvælaframleiðslu. Stærsti eigandinn er Gísli Þór Reynisson. Hann var í 15. sæti yfir ríkustu menn Íslands í úttekt tímaritsins Sirkus í sumar með eignir metnar upp á 35 milljarða. Umsvif félagsins eru mest í Eystrasaltslöndunum, aðallega í Lettlandi. Ekki náðist í Gísla Þór við vinnslu fréttarinnar.

Hotel D'Angleterre er eitt sögurfrægasta hótel Danmerkur og þótt víðar væri leitað. Það er fimm stjörnu hótel sem hefur skipað sér fastan sess á meðal Kaupmannahafnarbúa í gegnum 250 ára sögu sína.MYND/HARI
Front er nýtískulegt hótel á hafnarsvæðinu við Konungshöllina sem leggur áherslu á að ná til unga fólksins.MYND/HARI
Hotel Kong Frederik er staðsett á besta stað í Kaupmannahöfn nálægt Strikinu og Tívolínu. Hótelið á sér langa og farsæla sögu sem nær allt aftur á 14. öld.MYND/HARI
Copenhagen Corner er einn vinsælasti veitingastaður Kaupmannahafnar og hafa margir Íslendingar snætt þar á ferðum sínum í borginni. Staðurinn er á besta stað, við sjálft Ráðhústorgið.MYND/HARI





Fleiri fréttir

Sjá meira


×