Viðskipti innlent

Besta afkoma í sögu Lýsingar

Ólafur Helgi Ólafsson.
Ólafur er framkvæmdastjóri Lýsingar.
Ólafur Helgi Ólafsson. Ólafur er framkvæmdastjóri Lýsingar.
Eignarleigufyrirtækið Lýsing hf., dótturfélag Existu, skilaði rétt rúmlega eins milljarðs króna hagnaði á síðasta ári samanborið við 689 milljóna króna hagnað árið 2005. Þetta er besta starfsár í sögu fyrirtækisins.

Hagnaður fyrir skatta nam 1,2 milljörðum króna sem er 391 milljón króna meira en árið á undan.

Arðsemi eigin fjár nam 28 prósentum samanborið við 22 prósent árið á undan en eigið fé Lýsingar nam rúmum 4,9 milljörðum króna í lok síðasta árs sem er rúmum 1,3 milljörðum krónum meira árið á undan.

Í uppgjör Lýsingar kemur fram að árið hafi einkennst af miklum vexti en útlán Lýsingar jukust um 61,99 prósent á milli ára.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×