Dagur starfsráðgjafar Ágústa E. Ingþórsdóttir. skrifar 20. október 2007 02:00 Félag náms- og starfsráðgjafa heldur upp á dag náms- og starfsráðgjafar í annað skipti á Íslandi þann 20. október nk. Tilgangur þessa dags er að vekja athygli landsmanna á þjónustu sem náms- og starfsráðgjafar veita og kynna strauma og stefnur í fræðigreininni. Mikilvæg skref hafa verið stigin til eflingar náms- og starfsráðgjafar. Fyrst má nefna að Fræðslumiðstöð atvinnulífsins hefur fengið það verkefni að koma á náms- og starfsráðgjöf á vinnustöðum hjá símenntunarmiðstöðvum um allt land og verið er að ráða náms- og starfsráðgjafa í þessi störf. Þarna er komin ný áskorun í hendur náms- og starfsráðgjafa um að ná til enn fleiri einstaklinga og hvetja til símenntunar. Í annan stað kveður 10 punkta samkomulag KÍ og menntamálaráðherra á um að náms- og starfsráðgjöf verði styrkt. Stjórnvöld, í samstarfi við sveitarfélög landsins, þurfa að tryggja starfsgrundvöll náms- og starfsráðgjafar. Lögbinda þarf rétt nemenda til að hafa aðgengi að náms- og starfsráðgjöf, að þeir njóti aðstoðar við náms- og starfsval og að vægi náms- og starfsfræðslu verði aukið. Gæði náms- og starfsráðgjafar haldast í hendur við menntun fagstéttarinnar. Tryggja þarf að nægilegt framboð sé af menntuðum náms- og starfsráðgjöfum á hverjum tíma og styðja við frekari uppbyggingu meistaranáms í náms- og starfsráðgjöf við Háskóla Íslands. Til að markmið náms- og starfsráðgjafar nái fram að ganga er jafnframt mikilvægt að almenningur sé upplýstur um það að þessi þjónusta sé í boði, hvar hennar sé að leita og hvernig hægt sé að nýta sér hana. Hér byggist allt á því að tryggja ákveðin gæði þjónustu, sinna hagsmunum ráðþega og að mikilvæg sér- og fagþekking skili sér inn í menntakerfið, út á vinnumarkaðinn og til almennings. Að sá sem leitar aðstoðar náms- og starfsráðgjafa geti verið viss um að sá sem þjónustuna veitir hafi tilskilda menntun og fagþekkingu. Hér er fyrst og fremst verið að hugsa um heill nemenda og annarra er njóta þjónustu náms- og starfsráðgjafa jafnframt því að tryggja fagleg vinnubrögð fagstéttarinnar. Lögverndun starfsheitis náms- og starfsráðgjafa er ein af grunnforsendum þess að þetta gangi eftir. Höfundur er formaður Félags náms- og starfsráðgjafa. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Að gera illt verra - Verðbólgan og ábyrgð stjórnvalda Jón Ferdínand Estherarson Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Hlakkarðu til að fara í skólann? Hulda Dögg Proppé Skoðun Íslenski hesturinn og ESB: Hræðsluáróður eða raunveruleg hætta? Begga Rist Skoðun Umsóknarferlið útskýrt fyrir kjána Elísabet Kjárr Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun Þegar stjórnvöld og stórfyrirtæki standa ekki við orð sín Jóhann Helgi Stefánsson,Jón Helgi Björnsson Skoðun Verðbólgan er stærsti einstaki uppruni hagnaðar á Íslandi Egill Almar Ágústsson Skoðun Skoðun Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Hver ætlar að hafa augun á boltanum? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Brexit rútan mætt til Íslands! Andrés Pétursson skrifar Skoðun Að gera illt verra - Verðbólgan og ábyrgð stjórnvalda Jón Ferdínand Estherarson skrifar Skoðun Íslenski hesturinn og ESB: Hræðsluáróður eða raunveruleg hætta? Begga Rist skrifar Skoðun Landbúnaður og matvælaverð – Framtíðar þróun Guðjón Sigurbjartsson skrifar Skoðun Þegar stjórnvöld og stórfyrirtæki standa ekki við orð sín Jóhann Helgi Stefánsson,Jón Helgi Björnsson skrifar Skoðun Umsóknarferlið útskýrt fyrir kjána Elísabet Kjárr skrifar Skoðun Hlakkarðu til að fara í skólann? Hulda Dögg Proppé skrifar Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Ræður Ísland eitt við heilbrigðisverkefni framtíðarinnar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Já við fleiri verkfærum fyrir byggðir landsins Arna Lára Jónsdóttir skrifar Skoðun Ábyrg stefna í alþjóðamálum Gísli Garðarsson skrifar Skoðun Raunverulegt sjálfstæði Sandra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun Kerfislægt virðingarleysi – Þegar sparað er í velferð en verðmæti sameignar renna annað Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Rífum í lóðin Karólína Helga Símonardóttir skrifar Skoðun Maðurinn einn er ei nema hálfur – með öðrum er hann meiri en hann sjálfur Kristín Bjarnadóttir skrifar Skoðun Slaufun, skautun, skömmun Örn Bárður Jónsson skrifar Skoðun When Path Dependence Becomes an Argument for Saying No Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Grein fyrir óákveðna kjósendur og nei-sinna Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Fullveldi þjóðar og frelsi einstaklings Pétur B. Sveinsson skrifar Skoðun „Vilja til að ganga í Evrópusambandið“ Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Almenningur ákveður 29. ágúst hvort vextir verða 3–4% eða 8–9% og áhætta þjóðarinnar verði mikil eða lítil næstu 30 árin Baldur Pétursson skrifar Skoðun Að skilja, eða skilja ekki, umræðuna Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun NEI! Atlaga að lýðræði og svipting kosningaréttar Magnús Jónsson skrifar Sjá meira
Félag náms- og starfsráðgjafa heldur upp á dag náms- og starfsráðgjafar í annað skipti á Íslandi þann 20. október nk. Tilgangur þessa dags er að vekja athygli landsmanna á þjónustu sem náms- og starfsráðgjafar veita og kynna strauma og stefnur í fræðigreininni. Mikilvæg skref hafa verið stigin til eflingar náms- og starfsráðgjafar. Fyrst má nefna að Fræðslumiðstöð atvinnulífsins hefur fengið það verkefni að koma á náms- og starfsráðgjöf á vinnustöðum hjá símenntunarmiðstöðvum um allt land og verið er að ráða náms- og starfsráðgjafa í þessi störf. Þarna er komin ný áskorun í hendur náms- og starfsráðgjafa um að ná til enn fleiri einstaklinga og hvetja til símenntunar. Í annan stað kveður 10 punkta samkomulag KÍ og menntamálaráðherra á um að náms- og starfsráðgjöf verði styrkt. Stjórnvöld, í samstarfi við sveitarfélög landsins, þurfa að tryggja starfsgrundvöll náms- og starfsráðgjafar. Lögbinda þarf rétt nemenda til að hafa aðgengi að náms- og starfsráðgjöf, að þeir njóti aðstoðar við náms- og starfsval og að vægi náms- og starfsfræðslu verði aukið. Gæði náms- og starfsráðgjafar haldast í hendur við menntun fagstéttarinnar. Tryggja þarf að nægilegt framboð sé af menntuðum náms- og starfsráðgjöfum á hverjum tíma og styðja við frekari uppbyggingu meistaranáms í náms- og starfsráðgjöf við Háskóla Íslands. Til að markmið náms- og starfsráðgjafar nái fram að ganga er jafnframt mikilvægt að almenningur sé upplýstur um það að þessi þjónusta sé í boði, hvar hennar sé að leita og hvernig hægt sé að nýta sér hana. Hér byggist allt á því að tryggja ákveðin gæði þjónustu, sinna hagsmunum ráðþega og að mikilvæg sér- og fagþekking skili sér inn í menntakerfið, út á vinnumarkaðinn og til almennings. Að sá sem leitar aðstoðar náms- og starfsráðgjafa geti verið viss um að sá sem þjónustuna veitir hafi tilskilda menntun og fagþekkingu. Hér er fyrst og fremst verið að hugsa um heill nemenda og annarra er njóta þjónustu náms- og starfsráðgjafa jafnframt því að tryggja fagleg vinnubrögð fagstéttarinnar. Lögverndun starfsheitis náms- og starfsráðgjafa er ein af grunnforsendum þess að þetta gangi eftir. Höfundur er formaður Félags náms- og starfsráðgjafa.
Þegar stjórnvöld og stórfyrirtæki standa ekki við orð sín Jóhann Helgi Stefánsson,Jón Helgi Björnsson Skoðun
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar
Skoðun Þegar stjórnvöld og stórfyrirtæki standa ekki við orð sín Jóhann Helgi Stefánsson,Jón Helgi Björnsson skrifar
Skoðun Kerfislægt virðingarleysi – Þegar sparað er í velferð en verðmæti sameignar renna annað Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Maðurinn einn er ei nema hálfur – með öðrum er hann meiri en hann sjálfur Kristín Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Almenningur ákveður 29. ágúst hvort vextir verða 3–4% eða 8–9% og áhætta þjóðarinnar verði mikil eða lítil næstu 30 árin Baldur Pétursson skrifar
Þegar stjórnvöld og stórfyrirtæki standa ekki við orð sín Jóhann Helgi Stefánsson,Jón Helgi Björnsson Skoðun