Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar 24. ágúst 2026 07:17 Ég hef þegar greitt atkvæði í þjóðaratkvæðagreiðslunni um áframhaldandi viðræður við Evrópusambandið og mitt svar var já. Það þýðir ekki að ég hafi ákveðið að ég telji að Ísland eigi að ganga í Evrópusambandið. Ég hef einfaldlega ekki forsendur til að taka þá ákvörðun fyrr en ég sé hvað okkur stendur raunverulega til boða. Hvort nægjanlegt tillit verði tekið til sérstöðu okkar sem auðlindadrifinnar þjóðar og þess að við erum harðbýl eyja sem býr við allt aðrar áskoranir en flest ríki á meginlandinu. Fyrir mér er þetta einfalt Fáum samninginn á borðið, skoðum hann og tökum síðan ákvörðun. Við búum í frábæru landi og eigum að ganga að samningaborðinu með sjálfstraust. Að mínu mati höfum við engu að tapa á því að kanna hvort góður samningur geti gert sterkt samfélag enn sterkara. Við höfum í áratugi talað um mikilvægi þess að efla byggð um allt land. Samt hefur safnast upp gríðarleg innviðaskuld á landsbyggðinni sem er fyrir löngu komin á gjalddaga. Stöðugt þarf að berjast fyrir fjárfestingu í samgöngum, atvinnuuppbyggingu, nýsköpun og þjónustu. Mín skoðun er sú að landsbyggðirnar eigi ekki alltaf að þurfa að vera í varnarbaráttu. Við eigum að vera í stöðu til að sækja fram. Þess vegna finnst mér áhugavert að skoða hvaða tækifæri gætu falist í byggðastefnu Evrópusambandsins og hvort í henni séu leiðir sem gætu hjálpað okkur að byggja upp sterkari landsbyggð til framtíðar. Þar sé ég tækifæri sem vert er að skoða en líka stór mál sem við verðum að fá svör við. Við eigum að semja Við eigum að ganga til viðræðna með sérstöðu Íslands að leiðarljósi. Þar skipta fiskveiðiauðlindin, íslenskur landbúnaður og fæðuöryggi, strjálbýli, miklar vegalengdir og öflugar sjávarbyggðir um allt land gríðarlega miklu. Þetta eru hagsmunir sem við eigum að standa vörð um og leggja ríka áherslu á í samningaviðræðum. Síðan skulum við sjá hvaða niðurstöðu við getum náð og taka afstöðu til hennar á eigin forsendum. Fyrir mér eru þessi stóru hagsmunamál því ekki ástæða til að hætta áður en við byrjum. Þau eru ástæða til að fara vel undirbúin að borðinu og kanna hvað hægt er að semja um. Sama á við um efnahagsmálin. Ég vil vita hvort við getum skapað meiri stöðugleika, fengið lægri vexti og betri kjör fyrir heimilin með inngöngu og upptöku á öðrum gjaldmiðli. Hvaða áhrif gæti evran haft á íslenskt efnahagslíf? Gæti meiri samkeppni lækkað verð á vörum og matarkörfunni? Gætu íslensk fyrirtæki orðið samkeppnishæfari og fengið fleiri tækifæri á stærri markaði? Gæti erlend fjárfesting aukist? Þetta skiptir landsbyggðirnar ekki síður máli. Háir vextir, kostnaðarsamar samgöngur og lítill heimamarkaður geta haft mikil áhrif á fólk og fyrirtæki um allt land. Ég veit ekki svörin við öllum þessum spurningum og það er einmitt ástæðan fyrir því að ég vil viðræður. Ég ber fulla virðingu fyrir því að fólk komist að ólíkum niðurstöðum í þessu máli. Sumir eru sannfærðir um að framtíð Íslands sé betur borgið utan Evrópusambandsins. Aðrir telja að tækifærin séu meiri innan þess. Sjálf er ég ekki tilbúin að taka lokaákvörðun fyrr en ég veit hvað okkur stendur raunverulega til boða. Ég vil að við göngum sjálfsörugg að borðinu, sem sterk og sjálfstæð þjóð, og reynum að ná besta mögulega samningi fyrir allt Ísland. Síðan fær þjóðin samninginn í hendurnar. Þá ræðum við kosti hans og galla. Þá metum við það sem við fáum á móti því sem við þurfum að gefa eftir og þá tökum við lokaákvörðunina. Kannski segi ég þá já. Kannski segi ég nei. En fyrst vil ég fá að sjá. Það er það sem mitt já þýðir. Höfundur er þingmaður Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Samfylkingin Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Eydís Ásbjörnsdóttir Mest lesið Halldór 24.10.26 Halldór Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon Skoðun Skoðun Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar skrifar Skoðun Bráðum verðum við ósýnileg Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Þegar unga kynslóðin missir trúna á framtíðina Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson skrifar Skoðun Hvar var rannsóknarblaðamennskan? Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Er náttúrupassinn áhættunnar virði? Valdís María Smáradóttir skrifar Skoðun Keisarinn er ekki í fötum! Hjördís Guðný Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson skrifar Sjá meira
Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar