Hamburg heldur í vonina 26. maí 2007 15:16 Logi Geirsson er hér í baráttunni við Bertrand Gille í leik Lemgo og Hamburg í dag NordicPhotos/GettyImages
Næst síðasta umferðin í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta fór fram í dag. Hamburg eygir enn veika von um að tryggja sér meistaratitilinn eftir að liðið vann góðan sigur á Lemgo í dag á meðan efsta liðið Kiel tapaði fyrir grönnum sínum í Flensburg. Snorri Steinn Guðjónsson var maður dagsins þegar hann skoraði 13 mörk fyrir Minden gegn Gummersbach. Flensburg vann nokkuð öruggan heimasigur á Kiel 41-36 þar sem Pólverjinn Marcin Lijewski skoraði 11 mörk fyrir Flensburg og þeir Kasper Nielsen og Lars Christiansen 8 hvor. Kim Andersen skoraði 10 mörk fyrir Kiel og þeir Per Linders og Nikola Karabatic 7 hvor. Leikurinn var sýndur beint á Sýn. Þrátt fyrir tapið nægir Kiel að vinna sigur í lokaumferðinni til að tryggja sér enn einn meistaratitilinn, því markahlutfall liðsins er mun betra en hlutfall Hamburgara. Hamburg lagði Íslendingalið Lemgo í dag 33-28 þar sem stórskyttan Yoon skoraði 9 mörk fyrir Hamburg. Filip Jicha skoraði 9 mörk fyrir Lemgo, Ásgeir Örn Hallgrímsson 4 og Logi Geirsson 2. Magdeburg lagði Grosswallstadt 34-27 þar sem Alexander Petersson skoraði 4 mörk fyrir Grosswallstadt. Minden og Gummersbach skildu jöfn 32-32 í hörkuleik þar sem Snorri Steinn skoraði 13 mörk fyrir Minden og nýtti öll 5 víti sín í leiknum og Einar Örn Jónsson skoraði 6 mörk. Guðjón Valur Sigurðsson skoraði 6 mörk fyrir Gummersbach og Róbert Gunnarsson 4 - en markahæstur hjá liðinu var Serbinn Momir Ilic með 15 mörk. Þórir Ólafsson skoraði 7 mörk fyrir Lubbecke þegar liðið vann góðan útisigur á Dusseldorf 36-29 og Gylfi Gylfason skoraði 3 mörk fyrir Wilhelmshavener í sigri liðsins á Wetzlar 29-28. Þá tapaði Balingen heima fyrir Kronau 25-28, Nordhorn lagði Göppingen 30-29 og Hildesheim burstaði Melsungen 37-28. Kiel og Hamburg eru efst í deildinni með 56 stig, Flensburg hefur 51 stig, Gummersbach 49 líkt og Nordhorn, Magdeburg hefur 48 stig og Lemgo 43 stig. Hildesheim er á botni deildarinnar með 11 stig, Lubbecke hefur 15 stig, Wetzlar 16 stig, Dusseldorf 17 stig og Minden er úr bráðri fallhættu með 18 stig í 14. sæti deildarinnar.
Mest lesið Gerrard um yfirlýsingu Salah: „Talsverður áfellisdómur yfir stjóranum“ Enski boltinn Alonso tekur við Chelsea Enski boltinn Þjálfari Juventus pirraður á fagnandi Alberti Fótbolti Fernandes jafnaði stoðsendingametið í sigri United Enski boltinn Mourinho fór taplaust í gegnum tímabilið: „Framtíð mín mun ráðast í vikunni“ Fótbolti McGregor snýr aftur í búrið og berst við Holloway í júlí Sport Færeyingar í skýjunum með HM-sætið: „Eigum bara eftir að verða betri“ Handbolti Dagskráin í dag: Heil umferð í Bestu karla, enski boltinn og ögurstund í Njarðvík Sport Aldrei unnið atvinnumannamót en er efstur fyrir lokahringinn á PGA Golf „Sem hafa enn og aftur dregið skoskan fótbolta niður í svaðið“ Fótbolti Fleiri fréttir Færeyingar í skýjunum með HM-sætið: „Eigum bara eftir að verða betri“ Færeyjar á HM í fyrsta sinn Strákarnir hans Dags unnu Svía Yngri bróðir Sagosen steig á svið er Noregur komst á HM Alfreð og hans menn fengu ekki að hefna sín neitt Egyptaland - Ísland 27-30 | Tveggja sigra ferð til Kaíró Dagur snýr heim úr atvinnumennsku „Vaxandi meinsemd í íslensku samfélagi“ „Þetta úrslitaeinvígi braut mig“ Dagur gat ekki stillt upp sínu sterkasta í tapi gegn Svíum Santos óskaði eftir starfslokum sem þjálfari Selfoss Egyptaland - Ísland 30-31 | Skoruðu síðustu fjögur mörkin og tryggðu sér sigur Tilkynntu komu Arnars til stórliðsins á meðan hann spilaði landsleik Gísli Þorgeir útskýrir fjarveru sína: „Ber ekkert nema virðingu fyrir landsliðinu“ HSÍ verður að fá pening frá ríkinu „Hlakkaði til að koma hingað eftir síðasta leik“ „Gríðarlega stoltur af leikmönnum mínum“ „Ofboðslega stolt af því að standa hér sem sigurvegari“ „Fann það þegar ég vaknaði í morgun að við værum on“ „Tímabilið hefur verið rússibani“ „Slæm byrjun í seinni hálfleik varð okkur að falli“ Uppgjörið: ÍBV - Valur 26-30 | Valur tryggði sér titilinn í annarri tilraun Katrín Tinna til Danmerkur „Við þurfum að gera betur á öllum vígstöðvum“ Birgir Már til Amicitia Zürich Alfreð fékk heiðursorðu Ómar Ingi fór hamförum og Íslendingaliðið einu skrefi frá titli ÍBV fær háa sekt vegna ósæmilegrar hegðunar stuðningsmanns „Eitt allra eftirminnilegasta íþróttalið síðasta áratuginn“ Vilja banna landsliðsþjálfurum að þjálfa félagslið Sjá meira