Álag á skuldatryggingar heldur áfram að falla 3. desember 2007 12:11
Álag á skuldatryggingar íslensku viðskiptabankanna heldur áfram að falla og á þeirri viku sem liðin er síðan að Kaupþing tilkynnti um lok fjármögnunar á hollenska bankanum NIBC hefur álag íslensku bankanna fallið um rúmlega um 100 púnkta að meðaltali. Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Glitnis og þar segir að tryggingaálag Kaupþings er nú 250 pkt. en fór hæst upp í 370 pkt. og hefur því fallið um 120 pkt á einni viku. Álag Landsbankans er nú í 110 pkt. samanborið við 175 pkt. á mánudaginn fyrir viku síðan og hefur því fallið um 65 pkt. Álag Glitnis hefur hlutfallslega lækkað mest og stendur nú í 140 punktum sem er 130 punktum minna en fyrir viku síðan þegar álagið var komið upp í 270 pkt. Þrátt fyrir að skuldatryggingarálag fjármálafyrirtækja hafi almennt farið hækkandi í heiminum frá því í sumar eru flestir á því að álag íslensku viðskiptabankanna hafi hlutfallslega hækkað meira en tilefni er til undanfarnar vikur, sér í lagi í samanburði við önnur fjármálafyrirtæki af svipaðri stærð og gerð. Þrátt fyrir lækkun undanfarinna daga eru íslensku bankarnir enn óravegu frá því að komast á sömu slóðir og í sumarbyrjun, áður en áhrifa lausafjárkreppunnar fór að gæta. Þann fyrsta júní síðastliðinn stóð álag Kaupþings í 29 pkt, Landsbankans í 19 pkt og Glitnis í 24 pkt. Ólíklegt er þó að álagið verði svo lágt að nýju á næstunni, þar sem verðlagning áhættu hefur breyst í kjölfar óróans á haustdögum.
Mest lesið Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Viðskipti innlent Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Viðskipti innlent Hótelin fá ný nöfn Viðskipti innlent Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Viðskipti innlent Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Viðskipti innlent Barilla og Himneskt víkja fyrir breiðara pastaúrvali Neytendur Högnuðust um hálfan annan milljarð Viðskipti innlent Innkalla milljónir bíla vegna innfelldra hurðahúna Viðskipti erlent Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Viðskipti innlent Nýr og ódýrari valkostur fyrir fyrirtæki sem þurfa að losa úrgang Samstarf Fleiri fréttir Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu „Það eru engin fórnarlömb hér“ Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Hækka stýrivexti Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Sjá meira