Ég hata homma 15. febrúar 2007 15:49 Tim Hardaway er ekki gefinn fyrir samkynhneigt fólk NordicPhotos/GettyImages
Fyrrum NBA leikmaðurinn Tim Hardaway fór hamförum í útvarpsviðtali sem tekið var við hann í spjallþætti á útvarpsstöð í Miami í gærkvöldi þegar hann var spurður út í það þegar fyrrum leikmaðurinn John Amaechi kom út úr skápnum á dögunum. "Ég hata homma og vil bara að það komi skýrt fram að ég hata homma. Ég þoli ekki samkynhneigt fólk og ég þoli ekki að umgangast það. Ég þjáist af hommafælni og mér finnst að samkynhneigð ætti hvorki að finnast í Bandaríkjunum né annarsstaðar í heiminum," sagði Hardaway þegar þáttarstjórnandinn spurði hann út í mál Amaechi, sem tilkynnti að hann væri samkynhneigður í bók sem hann gaf út á dögunum. "Ég myndi fyrir það fyrsta ekki vilja að það væri hommi í mínu liði og ef svo væri, myndi ég halda mig í hæfilegri fjarlægð frá honum. Svona maður ætti ekkert með það að vera inni í búningsherberginu um leið og ég," sagði Hardaway. Hardaway sá síðar að sér þegar fréttamaður Fox sjónvarpsstöðvarinnar hringdi í hann. "Ég sé eftir því að hafa sagt þetta og biðst afsökunar á því. Ég ætti ekki að segja svona lagað," sagði Hardaway, en gerði lítið úr því að draga yfirlýsingar sínar til baka. Þessi ummæli Hardaway hafa skiljanlega valdið gríðarlegu fjaðrafoki í fjölmiðlum í bandaríkjunum. Smelltu hér til að sjá frétt um málið og heyra það sem Hardaway sagði í útvarpsþættinum. Hardaway var fimmfaldur stjörnuleikmaður á sínum tíma og skoraði 17,7 stig og gaf 8,2 stoðsendingar að meðaltali í leik frá árunum 1990-2003.
NBA Mest lesið Sigursteinn barðist við tárin Handbolti „Íslenska eldfjallið“ sem átti að vera varaskeifa en vann svo titilinn Handbolti „Það er algjör geðbilun að spila í þessum hita“ Sport Aron verður aðalþjálfari FH en Sigursteinn aðstoðar Handbolti Carlsen í neðsta sæti í Noregi Sport Ósátt með HSÍ eftir að hafa orðið fyrir fordómum: „Hreint út sagt ömurlegt“ Handbolti Hættu leik þegar flugeldum var skotið inn á völlinn Handbolti Emil Barja tekur við Stjörnunni Körfubolti Jón Daði utan hóps af persónulegum ástæðum Íslenski boltinn Vilja ráða Iraola eða Lampard Enski boltinn Fleiri fréttir Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Elvar Már óvænt til Tenerife út tímabilið Pirraður yfir því hvernig Baldur yfirgaf Stjörnuna Grét alla Reykjanesbrautina „Er týpan sem er til í að taka nýjar áskoranir“ Gáfu miðann sinn og misstu af Grindavík verða Íslandsmeistari Mætti brjálaður til leiks eftir að hafa misst af verðlaunum Sjáðu öll tilþrif Pargo: „Aldrei séð annað eins á fjölum á Íslandi“ „Stjörnufólk er pirrað“ Ól upp dólg í nýkrýndum Íslandsmeisturum Sjá meira