Tækifæri til að breyta 12. maí 2007 06:00 Kosningarnar á laugardaginn stefna í að verða æsispennandi um leið og þær eru að mínu mati einhverjar hinar afdrifaríkustu um áratuga skeið. Í allan vetur og vor hafa breytingar legið í loftinu og megn óánægja með stjórnarstefnuna leynir sér ekki. Lykillinn að breytingum er að ríkisstjórnin falli og að Vinstrihreyfingin – grænt framboð hljóti góða kosningu. Við höfum fundið fyrir miklum meðbyr í skoðanakönnunum að undanförnu sem endurspeglar þann hljómgrunn sem málflutningur okkar hefur meðal almennings. Við Vinstri græn höfum lagt okkar málefnaáherslur fram undir kjörorðunum „Allt annað líf!“ og með því undirstrikað að atkvæði greitt okkur er skýrasta krafan um breytingar við stjórn landsins. Tólf ára valdatíð Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks er langur tími, of langur, og nú mega þessi ár ekki verða fleiri. Hér hefur verið algjör kyrrstaða í jafnréttismálum, velferðarkerfið hefur veikst og landsbyggðin stendur höllum fæti. Smánarblett eins og þann að setja Ísland á lista yfir stuðningsaðila Írakstríðsins verður að þvo af. Stóriðjustefna ríkisstjórnarinnar hefur auk þess valdið náttúruspjöllum sem aldrei verða tekin til baka og reynst skuldsettum heimilum og fyrirtækjum landsins þungur baggi. Þá reikninga og marga fleiri verður hægt að gera upp í dag. Fyrir hönd Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs þakka ég öllum sem lagt hafa hönd á plóg í okkar baráttu. Ég er stoltur af því að hún hefur verið málefnaleg og uppbyggileg af okkar hálfu. Almenningur veit hvar við stöndum því við höfum alla tíð talað skýrt um okkar áherslur og biðjum nú um styrk til að gera það áfram. Af viðtökunum að dæma tekur stór hluti þjóðarinnar undir sjónarmið okkar og gerir kröfu um annars konar forgangsröðun í landsstjórninni. Forgangsröðun í þágu umhverfis, kvenfrelsis, velferðar og friðar. Kosningarnar í dag eru þær mikilvægustu og mest spennandi um margra ára skeið. Ég hvet kjósendur til að nýta sér atkvæðisréttinn. Höfundur er formaður Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Ísland, já takk Jón Pétur Zimsen Skoðun Bollaleggingar Sigurður Kári Kristjánsson Skoðun Hvers vegna blaktir palestínski fáninn í Gleðigöngunni? Elí Hörpu- og Önundarbur,Bashar Murad Skoðun Höggdeyfir fyrir hverja? Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun “Við hefðum aldrei átt að ganga í ESB", sagði engin þjóð aldrei. Eiríkur Ragnarsson Skoðun Já-sjá leiðir til Já-já Guðmundur Edgarsson Skoðun Hvernig tryggjum við börnum okkar framtíð á Íslandi? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Ég hélt að friðurinn væri kominn Sigurður Árni Reynisson Skoðun Bandaríkin Gunnar Björgvinsson Skoðun B verður 8 – umbætur eða umbúðaskipti? Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Skoðun Skoðun “Við hefðum aldrei átt að ganga í ESB", sagði engin þjóð aldrei. Eiríkur Ragnarsson skrifar Skoðun Bandaríkin Gunnar Björgvinsson skrifar Skoðun Bollaleggingar Sigurður Kári Kristjánsson skrifar Skoðun Höggdeyfir fyrir hverja? Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Ísland, já takk Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Já-sjá leiðir til Já-já Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Hvernig tryggjum við börnum okkar framtíð á Íslandi? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Hvers vegna blaktir palestínski fáninn í Gleðigöngunni? Elí Hörpu- og Önundarbur,Bashar Murad skrifar Skoðun B verður 8 – umbætur eða umbúðaskipti? Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Ég hélt að friðurinn væri kominn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Við megum ekki gefa eftir Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Blásum til sóknar í menntun með bættum námsgögnum Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir skrifar Skoðun Sameinumst undir regnboganum: Jafnrétti, inngilding og stolt Clara Ganslandt skrifar Skoðun Mikilvægasta Gleðigangan Hanna Katrín Friðriksson skrifar Skoðun Sjöunda þversögn gervigreindar Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Myndum borga fyrir inngöngu Svartfjallalands Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun The First Yes Is the Crucial Vote Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Sameiginlegur þekkingargrunnur að glatast? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Bæjarstjórnarmyrkrið: Þegar einokunarleyfishafinn gat ekki kveikt ljósið Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Barátta intersex fólks standi styrkum fótum Daníel E. Arnarsson skrifar Skoðun JÁkvæður kvikmyndaframleiðandi Grímar Jónsson skrifar Skoðun Hvað ætlar þú að gera við tímann sem gervigreindin gefur þér? Þórdís Jóna Ingigerðardóttir skrifar Skoðun Hverju myndi evran skila? - svar til Ásdísar Kristjánsdóttur Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Eigi veldur sá er varar Sigurgeir B. Kristgeirsson skrifar Skoðun Hvað ef ...? Brynjar M. Ólafsson skrifar Skoðun Hlógu þeir líka að Sviss, Ólafur Ragnar? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Námsmat og einkunnir: Áskoranir og viðhorf Erna Ingibjörg Pálsdóttir skrifar Skoðun Af sannleiksást og vinnuréttindum Vilborg Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Öndum í poka! Ísland verður í lagi Jóhannes Óli Sveinsson skrifar Skoðun Íslensk, sænsk eða engin króna Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Sjá meira
Kosningarnar á laugardaginn stefna í að verða æsispennandi um leið og þær eru að mínu mati einhverjar hinar afdrifaríkustu um áratuga skeið. Í allan vetur og vor hafa breytingar legið í loftinu og megn óánægja með stjórnarstefnuna leynir sér ekki. Lykillinn að breytingum er að ríkisstjórnin falli og að Vinstrihreyfingin – grænt framboð hljóti góða kosningu. Við höfum fundið fyrir miklum meðbyr í skoðanakönnunum að undanförnu sem endurspeglar þann hljómgrunn sem málflutningur okkar hefur meðal almennings. Við Vinstri græn höfum lagt okkar málefnaáherslur fram undir kjörorðunum „Allt annað líf!“ og með því undirstrikað að atkvæði greitt okkur er skýrasta krafan um breytingar við stjórn landsins. Tólf ára valdatíð Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks er langur tími, of langur, og nú mega þessi ár ekki verða fleiri. Hér hefur verið algjör kyrrstaða í jafnréttismálum, velferðarkerfið hefur veikst og landsbyggðin stendur höllum fæti. Smánarblett eins og þann að setja Ísland á lista yfir stuðningsaðila Írakstríðsins verður að þvo af. Stóriðjustefna ríkisstjórnarinnar hefur auk þess valdið náttúruspjöllum sem aldrei verða tekin til baka og reynst skuldsettum heimilum og fyrirtækjum landsins þungur baggi. Þá reikninga og marga fleiri verður hægt að gera upp í dag. Fyrir hönd Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs þakka ég öllum sem lagt hafa hönd á plóg í okkar baráttu. Ég er stoltur af því að hún hefur verið málefnaleg og uppbyggileg af okkar hálfu. Almenningur veit hvar við stöndum því við höfum alla tíð talað skýrt um okkar áherslur og biðjum nú um styrk til að gera það áfram. Af viðtökunum að dæma tekur stór hluti þjóðarinnar undir sjónarmið okkar og gerir kröfu um annars konar forgangsröðun í landsstjórninni. Forgangsröðun í þágu umhverfis, kvenfrelsis, velferðar og friðar. Kosningarnar í dag eru þær mikilvægustu og mest spennandi um margra ára skeið. Ég hvet kjósendur til að nýta sér atkvæðisréttinn. Höfundur er formaður Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs.
Skoðun Hvers vegna blaktir palestínski fáninn í Gleðigöngunni? Elí Hörpu- og Önundarbur,Bashar Murad skrifar
Skoðun Blásum til sóknar í menntun með bættum námsgögnum Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir skrifar
Skoðun Bæjarstjórnarmyrkrið: Þegar einokunarleyfishafinn gat ekki kveikt ljósið Arnar Sigurðsson skrifar
Skoðun Hvað ætlar þú að gera við tímann sem gervigreindin gefur þér? Þórdís Jóna Ingigerðardóttir skrifar