Viðskipti innlent

Launavísitalan hækkaði um 1,3%

Vísitala launa er 121,8 stig á þriðja ársfjórðungi 2007 og hækkaði um 1,3% frá fyrri ársfjórðungi. Vísitala launa á almennum vinnumarkaði hækkaði um 1,5% á sama tímabili og vísitala launa fyrir opinbera starfsmenn um 1,0%.

Árshækkun vísitölu launa var 8,8% á þriðja ársfjórðungi 2007, 9,4% á almennum vinnumarkaði og 7,4% hjá opinberum starfsmönnum.

Ársfjórðungshækkun reglulegra launa var mest hjá skrifstofufólki og sérfræðingum, 1,9% en minnst hjá iðnaðarmönnum, 0,9%.

Regluleg laun skrifstofufólks hækkuðu mest frá þriðja ársfjórðungi 2006 eða um 12,2% en regluleg laun iðnaðarmanna hækkuðu minnst, 7,7%.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×