Exista græddi 8 milljarða á sænskum bankaslag 27. september 2007 17:59
Áform SEB bankans sænska um að kaupa 20% hlut sænska ríkisins í Nordea leiddi til þess að Sampo Group í Finnlandi hækkaði um fjögur prósent í dag og skilaði sú hækkun sér til Íslands. Hlutur Exista í Sampo hækkaði um 8,3 milljarða króna að markaðsvirði og hækkaði félagið um 1,89% í Kauphöllinni. Þess ber þó að geta að Exista færir hlut sinn í Sampo með hlutdeildaraðferð. Greining Kaupþings banka fjallar um málið í Hálf fimm fréttum sínum. Þar segir m.a. að markaðsvirði Nordea, stærsta fjármálafyrirtækis Norðurlanda, jókst um 200 milljarða króna í dag vegna fréttar sænska viðskiptablaðsins Dagens Industri um að SEB ætli sér að leggja fram tilboð í fimmtungshlut sænska ríkisins, stærsta hluthafans í Nordea, á verulegu yfirverði. Sænska ríkið vinnur að undirbúningi að sölu á hlutnum. "Þá dró það heldur ekki úr fjörinu að Sampo Group í Finnlandi, sem er annar stærsti hluthafinn í Nordea og að fimmtungshluta í eigu Exista, jók eignarhlut sinn í Nordea upp í sjö prósent. Sá hlutur er metinn á 190 milljarða króna," segir í Hálf fimm fréttum. Samkvæmt frétt DI ætlar SEB að bjóða 138 krónur fyrir hvern hlut sem er nærri þriðjungi hærra verð en sem nam dagslokagengi Nordea í gær. Ef SEB næði undir sig ráðandi hlut í Nordea þá myndi bankinn þar með leggja undir sig 1.100 útibú auk þess að fá til sín um tíu milljón viðskiptavini í Skandinavíu, Rússlandi, Póllandi og Eystrasaltsríkjunum.Bréf í Nordea hækkuðu mest um 16% innan dagsins en enduðu í um átta prósenta hækkun sem er sú mesta á einum degi í meira en fimm ár. Hlutabréf í SEB hækkuðu einnig hressilega í dag eða um 5,6%.
Mest lesið Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Viðskipti innlent Mátti rifta kaupum á bíl sem bilaði þremur dögum eftir kaup Neytendur Tollasamkomulag Bandaríkjanna og Kanada út um þúfur Viðskipti erlent Landsbankinn hækkar líka vexti Viðskipti innlent Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Viðskipti innlent JYSK opnar nýtt og glæsilegt vöruhús í Mosfellsbæ Samstarf Jón Þór fer til Samherja Viðskipti innlent Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Viðskipti innlent „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Viðskipti innlent „Þegar þú verður betri manneskja nærðu lengra“ Samstarf Fleiri fréttir Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu „Það eru engin fórnarlömb hér“ Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Hækka stýrivexti Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Árni skattakóngur annað árið í röð Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda María Klara til Athygli Sjá meira