Hannesi Smárasyni líkt við „flugdólg“ 27. september 2007 16:19 Hannes Smárason er forstjóri FL Group. MYND/Hörður Sveinsson
Hannes Smárason forstjóri FL Group þrýstir á AMR móðurfélag American Airlines að auka verðmæti félagsins sem fallið hefur um 50 prósent frá því í byrjun árs. Í bréfi sem hann sendi AMR og birt er á vefsíðu Wall Street Journal í dag segir hann möguleikana meðal annars liggja í að aðskilja vildarklúbb félagsins AAdvantage frá AMR. Ekki sé nóg að bregðast við lækkun hlutabréfa með því að kenna háum eldsneytiskostnaði og samkeppni um. Í bréfinu segir að lækkun hlutabréfa hafi kostað hluthafa um fimm milljarða bandaríkjadala.Hannes Smárason er óstýrlátur farþegiÍ undirfyrirsögn greinarinnar á Wall Street Journal segir að AMR sé með óstýrlátan farþega um borð. Í bréfinu segir Hannes að leitað hafi verið til stjórnenda fyrirtækisins eftir upplýsingum um aðgerðir til að auka virði félagsins. Þar sem engin áætlun í því skyni virðist vera í gangi sjái hann sig knúinn til að skrifa yfirstjórninni beint. Nú sé tíminn til að bregðast við. Tekið er fram að FL Group hafi mikla reynslu af því að auka virði flugfélaga á borð við easyJet, Sterling Airlines, Icelandair og Finnair. Eftir nána skoðun á AMR í nokkurn tíma leggi FL Group til að AMR komi ákveðnum eignum í verð. Þannig væri hægt að draga úr skuldum og skila fjármunum til hluthafa. „Við trúum því að ekki megi nokkurn tíma missa miðað við horfur á markaði," segir Hannes í bréfinu. Í grein Wall Street Journal er vitnað í viðtal þar sem Hannes mælir með að fyrirtækið selji viðhaldseiningar og losi sig auk þess við innanlandsfélagið American Eagle. FL Group á 8,3 prósent hlut í AMR og er því einn aðalhluthafa í félagsins. Talsmaður AMR sagði að fyrritækið taki ábendingar hluthafa ávallt til greina, en vildi ekki tjá sig um samskipti við FL Group. Í undirlagi bréfsins býður Hannes fram aðstoð FL Group við að koma hugmyndunum í framkvæmd.
Mest lesið Fimm frumkvöðlar: Afarnir, pabbarnir og nú 10 ára sonurinn Atvinnulíf Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Viðskipti innlent „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Viðskipti erlent Fleiri fréttir Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Sjá meira