Viðskipti innlent

Léttúð í umgengni um yfirtökureglur

Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, forstjóri Saga Capital Fjárfestingarbanka, varar markaðsaðila við frjálslegri umgengni við reglur um yfirtökuskyldu og segir að slíkt virðingaleysi komi aðeins niður á þeim sjálfum. Til lengri tíma muni það rýra traust á markaðnum og þar með hægja á vexti hans.

Þorvaldur var einn ræðumanna á ráðstefnu sem Fjármálaeftirlitið hélt í morgun um yfirtökur fyrirtækja og áhrif yfirtökureglna en yfirtökuskylda myndast þegar einn eða fleiri aðilar sem tengjast nánum böndum eignast 40% hlut eða meira í skráðu hlutafélagi.,,Það verður að ganga um þessar reglur á spariskónum. Hingað til hefur umgengni um yfirtökumörkin einkennst af léttúð, þar sem menn skauta mjög nálægt mörkum, virða að vettugi þau sjónarmið sem liggja að baki yfirtökuskyldunni og skeyta engu um úrskurði Yfirtökunefndar," sagði Þorvaldur í ræðu sinni.

Hann sagði að Yfirtökunefnd hafi í tveimur málum úrskurðað að málsaðilar væru yfirtökuskyldir. Í báðum tilvikum hafi málsaðilar selt sig niður fyrir mörk yfirtökuskyldunnar og þannig komist framhjá afleiðingum hennar. ,,Þetta lýsir nokkru virðingaleysi við reglurnar enda er þarna verið að dansa á línunni," segir Þorvaldur.

 

Íslenskir markaðsaðilar og útrásarfyrirtæki hafa að undanförnu mátt þola harða gagnrýni erlendis frá um það að hér á landi sé eignarhald þröngt og ógagnsætt og vöxtur markaðsins of hraður. Þorvaldur segir að þó að þessi gagnrýni sé að mörgu leyti ósanngjörn, þá verði því ekki neitað að eignarhald á íslenska verðbréfamarkaðnum sé með öðrum hætti en á erlendum mörkuðum enda smæð þjóðarinnar slík að boðleiðir séu stuttar og frjálsræði ríki í samskiptum.

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×