Hringrás sýknuð af skaðabótakröfu slökkviliðsins 29. maí 2007 16:32
Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði í dag endurvinnslufyrirtækið Hringrás af kröfu slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins vegna mikils bruna sem varð á athafnasvæði Hringrásar í nóvember 2004. Slökkvilið krafði fyrirtækið um rúmar 25,6 milljónir króna. Slökkviliðinu gekk erfiðlega að ráða við eldinn og fékk því aðstoð frá fyrirtækinu E.T. sem er í nágrenni Hringrásar í Sundahöfn. Vélar E. T. skemmdust í brunanum og þá þurfti að hreina til á lóð E.T. og fór því félagið fram á að vátryggingarfélag Hringrásar greiddi því skaðabætur. Því hafnaði vátryggingafélagið á þeim grundvelli að dekkjahrúgan sem björgunaraðgerðir E.T. hefðu einkum beinst að hefði verið ótryggð. Í framhaldinu ákvað stjórn slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins að greiða þennan kostnað E.T. en höfðaði jafnframt mál á hendur Hringrás til þess að fá kostnaðinnn endurgreiddan. Slökkviliðið hélt því fram að eigendur Hringrásar væru skaðabótaskyldir þar sem þeir hefður vanrækt öryggis- og eftirlitsskyldu sína og þannig valdið verktakafyrirtækinu E.T. tjóni með saknæmum og ólögmætum hætti. Forsvarsmenn Hringrásar bentu hins vegar á slökkiviliðið beindi kröfum sínum að röngum aðilda því samkvæmt lögum um brunavarnir bæru vátryggingarfélög eða sveitarstjórn kostnaðinn af sérstæku slökkvistarfi eins og tilfellið var í Hringrásarbrunanum. Undir þau rök Hringrásarmanna tók dómurinn og sagði að þar sem vátryggingarfélag Hringrásar hefði neitað greiðsluskyldu væri það sveitarstjórn, í þessu tilviki þau sveitarfélög sem standa að baki sameiginlegu slökkviliði á höfuðborgarsvæðinu, sem ætti að bera kostnaðinn af slökkvistarfi á athafnasvæði Hringrásar. Var Hringrás því sýknuð af kröfu slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins.
Mest lesið Borgarstjóri kom af fjöllum Innlent Kona bankaði upp á en inn ruddust tveir menn Innlent Silja sagði spurningu Einars fáránlega: „Það þýðir ekki að bendla okkur við þetta“ Innlent „Bara djók sem gekk of langt“ Innlent „Lifði eins og greifi“ á kostnað bróður síns með því að svíkja út vörur í kaupfélaginu Innlent „Mean girls“-stemning í munnlegu prófi við HÍ Innlent Loka eftir 65 ár: „Koma hingað til að fá að knúsa okkur og kyssa“ Innlent Kosningaspá Vísis: Stöðugleiki að komast á fylgi í borginni Innlent „Ég átta mig ekki á því hvað er verið að meina með því“ Innlent „Skorri Mánasson“ sagður þjást af „source amnesia“ Innlent Fleiri fréttir Icelandair enn og aftur í vandræðum Ofbeldi og gervigreind ekki vænlegt til árangurs „Ég átta mig ekki á því hvað er verið að meina með því“ Borgarstjóri kom af fjöllum „Lifði eins og greifi“ á kostnað bróður síns með því að svíkja út vörur í kaupfélaginu Húsráðandi mætti þjófnum eftir að hann fór inn og tók bíllyklana „Bara djók sem gekk of langt“ „Mean girls“-stemning í munnlegu prófi við HÍ Lesendur geta reiknað líkur á mögulegum meirihlutum Höfðu afskipti af ölvuðum ungmennum við Valhöll Loka eftir 65 ár: „Koma hingað til að fá að knúsa okkur og kyssa“ Heldur að Kristrún muni banna Björgu að líta til hægri Teknar úr umferð fyrr en til stóð Kona bankaði upp á en inn ruddust tveir menn Kosningaspá Vísis: Stöðugleiki að komast á fylgi í borginni Flugvöllur er ekki bara upp á punt Silja sagði spurningu Einars fáránlega: „Það þýðir ekki að bendla okkur við þetta“ Grunaður um líkamsárás og rán Listamannalaunakerfi í Reykjavík og róló með karakterum Guðrúnar Helgudóttur „Kristinn, þú ert bara fastur í rörsýn“ „Miðflokkurinn er ekki að sparka í neina krakka“ Tekist á um framkvæmdir við nýjan miðbæ í Hamraborg Sjálfstæðisflokkurinn stærstur og fylgi Miðflokks eykst á ný Kjósendur vilja helst þessa flokka í samstarf Rýnt í nýja könnun Svona voru kappræður oddvitanna á Sýn Kerfisvilla leiðrétt og spýtukofinn fær að standa Árasin einkenndist af talsverðri heift Segir Kristrúnu dreifa ósannindum um Sjálfstæðisflokkinn Tálbeitan sakfelld en aðrir dómar í Gufunesmáli mildaðir Sjá meira