William Fall ráðinn forstjóri Straums-Burðaráss 29. maí 2007 10:16
William Fall, fyrrverandi forstjóri Alþjóðasviðs Bank of America, hefur verið ráðinn forstjóri Straums-Burðaráss fjárfestingabanka, og tekur hann við af Friðriki Jóhannssyni sem hefur verið forstjóri bankans frá því í júní 2006. Fram kemur í tilkynningu frá Straumi-Burðarási að Fall hafi starfað sem forstjóri Alþjóðasviðs Bank of America frá árinu 2001 þar sem hann hafi haft yfirumsjón með og borið ábyrgð á allri starfsemi bankans utan Bandaríkjanna, í alls 18 löndum. Hann kom til starfa hjá Bank of America árið 1995 en starfaði þar áður fyrir Westpac Banking Corporation og Kleinwort Benson.Haft er eftir Björgólfi Thor Björgólfssyni, stjórnarformanni Straums-Burðaráss, að Fall sé mikill fengur fyrir bankann. Hann hafi til að bera víðtæka reynslu úr starfi sínu hjá Bank of America þar sem hann hafi leitt alþjóðlega uppbyggingu á einum stærsta banka veraldar. „Ráðning Williams sem forstjóra Straums-Burðaráss markar mikilvæg tímamót í umbreytingu bankans í fjárfestingabanka sem er samkeppnishæfur á alþjóðamörkuðum og með sterka stöðu á Norðurlöndum. Ég er sannfærður um að William er rétti maðurinn til að leiða bankann til enn frekari vaxtar."Þá er Friðriki Jóhannssyni þökkuð góð störf fyrir bankann en hann tók við af Þórði Má Jóhannessyni í fyrra eftir átök í hlutahafahópi Straums. Friðrik mun starfa hjá Straumi næstu mánuði til að tryggja að forstjóraskiptin gangi greiðlega fyrir sig.
Mest lesið „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Viðskipti innlent Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf Elín Hirst stofnar fyrirtæki Viðskipti innlent Nýr Nissan LEAF er á leiðinni Samstarf Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Viðskipti innlent Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Viðskipti innlent Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Viðskipti innlent Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn Viðskipti innlent Tekjur Nvidia tvöfölduðust milli ára Viðskipti erlent Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Viðskipti innlent Fleiri fréttir Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Sjá meira