Lækkum ökuleyfisaldur 8. júlí 2007 06:00 Fréttir af slysum ungmenna við akstur síðustu daga hafa vakið athygli mina. Oftar en ekki er um afleiðingar ofsaaksturs að ræða. Óhörnuð og reynslulítil ungmenni að gera hluti í umferðinni sem ekki eiga heima þar. Það vekur manni spurningar um orsök þess að þetta gerist. Er þetta afleyðing af agaleysi samfélagsins eða rangri uppbyggingu ökunáms ? Líklega hafa báðir þættir áhrif en mér er nær að ætla að skipulag ökunáms vegi þar þyngra. En hvers vegna er ég að skrifa þessa grein ? Jú, því mig langar að segja frá hvernig hluti mestu bílaþjóðar heimsins þjálfar og fræðir sína nýju ökumenn. Dóttir mín sem verður 17 ára í September nk hefur ekið bíl löglega í tæp 2 ár !! Nú fyrir skemmstu fékk hún heimild til að aka bíl og jafnframt að hafa jafnaldra sína sem farþega. Það kom sér reyndar vel því að fjórir vinir frá Íslandi voru að koma í heimsókn. Maine fylki í Bandaríkjunum breytti fyrir nokkrum árum áherslum í þjálfun nýrra ökumanna. Ástæða breytingana var að stemma stigu við ótímabærum dauða ungs fólks og alvarlegum slysum. Kerfið hefur verið það árangurs ríkt að Alríkisstjórnin hefur litið til þess í leiðbeiningum til annarra fylkja um úrbætur. Grunn hugmyndin er sú að ungmennunum er gert að þjálfa sig í akstri í minnst 1 ár áður en þeim er heimilt að aka ein með jafnöldrum sínum. Aðstæður til aksturs í meginhluta Maine eru ekki ósvipaðar okkar. Vetur eru snjóþungir og hálka á vegum ekki óalgeng. Þá leiðir nálægð sjávar til þess að hitastig er oft við frostmark í fjölmennstu byggðarlögunum. Vetrardekk eru óalgeng og því flestir sem aka á grip litlum sumardekkjum Þetta leggur því hættur fyrir ökumenn og því nauðsynlegt að þjálfa þá vel áður en þeir fá full réttindi til aksturs. En hættur eru ekki bara á veturna og því er þjálfun ökumanna við almenn aksturskilyrði mikilsvægust til að geta brugðist við margbreytileika umferðarinnar.Aukin þjálfunÞessa þörf fyrir þjálfun er grunnurinn að því kerfi sem komið hefur verið á í Maine. Þar byggir ökukennsla og réttindi nýrra ökumanna á eftirfarandi:1. Bóklegt nám, gjarnan kvöldskóli 2-3 vikur sem líkur með skriflegu prófi. Kennslubókin er lögð til af yfirvöldum án endurgjalds.2. Samhliða bóklegu námi er verkleg ökukennsla undir leiðsögn kennara minnst 10 ökutímar. Nemanda er heimilt að byrja námið þegar hann hefur náð 15 ára aldri.3.Hafi nemandi lokið ofangreindu og staðist bóklega prófið fær hann leyfi til æfinga¬aksturs. Æfingaakstur fer fram undir leiðbeiningu ökumanna sem eru eldri en 21 árs og hafa haft ökuréttindi í tilgreindan lágmarkstíma. Haldin skal dagbók yfir aksturinn, lágmarks fjöldi ökutíma er 35 klst og skal þar af minnst 5 klst hafa farið fram í myrkri.4. Verklegt ökupróf fá þeir að þreyja sem hafa náð 16 ára aldri og hafa stundað æfingaakstur að lágmarki í 6 mánuði.5. Standist ökumaður prófið fær hann samstundis ökuleyfi. Sé ökumaður yngri en 21 árs fær hann takmarkað leyfi fyrstu 6 mánuðina. Honum er óheimilt að hafa jafnaldra sína (yngri en 21) aðra en fjölskyldumeðlimi með sér í bílnum.6. Þegar þessi 6 mánuðir eru útrunnir og ekkert hefur borið upp á þá hefur þessi nýi ökumaður öðlast full réttindi. Líklega þykir einhverjum þetta flókið kerfi, en það hefur gefið af sér betri ökumenn og lægri slysatíðni. Árangur hefur verið langt umfram væntingar.Fyrstu skrefin án þrýstingsHelstu kostir þessa kerfis eru í megin atriðum tveir. Í fyrsta lagi að þjálfunarkrafan er mikil sem færir okkur reyndari nýja ökumenn. Þá finna unglingarnir ekki þrýsting frá félögunum á meðan þeir eru ná tökum á þeim fjölda atriða sem móta góðan ökumann Í öðru lagi tel ég að yngri nemendur séu ekki eins mótaðir einstaklingar og taka betur leiðbeiningu. Reyndar nota margir áþekk rök til þess að hvetja til hækkunar ökuleyfisaldurs.Grein þessi er einvörðungu sett fram til upplýsinga því mér þykir rétt að vekja athygli á nýrri hugsun Það von mín að hún nýtist þeim sem um málið fjalla.Þá er að lokum gaman að geta þess að hinir ungu gestir okkar frá Íslandi, allir 17 ára, öfunduðu heimasætuna af því að hafa verið skylduð í alla þessa þjálfun. Þau hefðu gjarnan kosið sama kerfi. Höfundur er tæknifræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hvað er í pakkanum? Hannes Lúðvíksson Skoðun Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson Skoðun Einstaklingurinn og fullveldið Signý Sigurðardóttir Skoðun Traust á lögmönnum er ekki einkamál lögmanna Vilbert Gústafsson Skoðun Heimilislæknar og reglugerðardrög Alma D. Möller Skoðun Nýsköpunin sem hverfur inn í skýið Bogi Ragnarsson Skoðun Upplýsingar eru ekki ógn, þær eru forsenda Halldór Jörgen Olesen Skoðun Þegar kaffið rennur upp á við í Undralandi íslenskrar orðræðu Sigurður Sigurðsson Skoðun Skilvirk núna en ekki ef við göngum í ESB Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Áhugaverðar ákvarðanir Sigurður Ingi Friðleifsson Skoðun Skoðun Skoðun Hvað er í pakkanum? Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Nýsköpunin sem hverfur inn í skýið Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Þegar kaffið rennur upp á við í Undralandi íslenskrar orðræðu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson skrifar Skoðun Traust á lögmönnum er ekki einkamál lögmanna Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Upplýsingar eru ekki ógn, þær eru forsenda Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Heimilislæknar og reglugerðardrög Alma D. Möller skrifar Skoðun Einstaklingurinn og fullveldið Signý Sigurðardóttir skrifar Skoðun Skilvirk núna en ekki ef við göngum í ESB Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sterkari skólar fyrir öll börn Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Ég hef líka trú á Ögmundi Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun „Áður en við segjum já eða nei“ Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Þjóðarmorð? Finnur Th. Eiríksson skrifar Skoðun Breyttar áherslur í borgarskipulagi Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Hernaðarbrölt Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Það sem við gefum áfram Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Ríkið má ekki skorast undan Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Gjaldtaka hins opinbera þarf að vera fyrirsjáanleg Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin 250 ára: frelsi, stjórnarskrá og lærdómur fyrir Ísland Júlíus Valsson skrifar Skoðun Getum við gert enn betur? Já í ágúst Elvar Örn Arason skrifar Skoðun Húsnæðiskaupmáttur Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Hef trú á Arnari Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Börn eiga ekki að bíða meðan kerfið rífst Guðmundur Ármann skrifar Skoðun Júlí - mánuður fötlunarstolts Freyja Haraldsdóttir ,Jana Birta Björnsdóttir skrifar Skoðun Níutíu ár af sameiginlegu öryggi Ragnar Þór Ingólfsson skrifar Skoðun Var þetta sýndarsamráð? Sigurborg Kr. Hannesdóttir skrifar Skoðun Hvað vitum við í ágúst? Staðreyndir og möguleikar Íslands Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Töpum við fullveldinu ef við göngum í ESB? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Samningurinn sem allir hafa lesið skrifar Skoðun UT-mál Reykjavíkurborgar Haukur Arnþórsson skrifar Sjá meira