Alcoa og Eimskip semja um flutninga 6. nóvember 2007 12:20
Alcoa Fjarðaál og Eimskip hafa undirritað umfangsmikinn samning um að Eimskip sjái um flutning á rúmlega 220.000 tonnum, þar af innflutning á 180.000 tonnum og útflutning á 40.000 tonnum á ári, fyrir Alcoa Fjarðaál. Um er að ræða alla flutninga á rafskautum fyrir álver Alcoa Fjarðaáls í Reyðarfirði. Jafnframt hafa félögin náð samkomulagi um 40.000 tonna álflutninga til Bandaríkjanna og er því um að ræða flutninga upp á 260.000 tonn á ári. Í tilkynningu um málið segir að samningurinn komi í beinu framhaldi af samningi sem félögin gerðu með sér fyrr á árinu og var kynntur í febrúar síðastliðnum. Þá var samið um að Eimskip annist alla skipaafgreiðslu fyrir Fjarðaál í Reyðarfirði. Í þeim samningi felst uppskipun á 690.000 tonnum af súráli og öllum aðföngum til álframleiðslu, svo og á allri lestun áls sem nemur 346.000 tonnum á ári. Í heild er því umfang samningsins 1.300.000 tonn á ári, sem fara munu í gegnum Mjóeyrarhöfn í Reyðarfirði. Samningar fyrirtækjanna tveggja á sviði flutningastarfsemi og þjónustu leiðir af sér eitthvert umfangsmesta samstarf á sviði flutninga sem ráðist hefur verið í á þessu sviði hér á landi. Þegar starfsemi álversins kemst í fullan gang verður Mjóeyrarhöfn í Reyðarfirði önnur mesta vöruflutningahöfn landsins. Til samanburðar má geta þess að um tvær milljónir tonna fara árlega um Reykjavíkurhöfn og 900 þúsund tonn um Grundartangahöfn.
Mest lesið Fimm frumkvöðlar: Afarnir, pabbarnir og nú 10 ára sonurinn Atvinnulíf „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Viðskipti erlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Land Rover veisla á laugardaginn Samstarf Verslunin Air lokar í Kringlunni Viðskipti innlent Fleiri fréttir Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Sjá meira