Skoðun

Pyntingar og sjálfsvíg

Sádi-arabísk­ur maður framdi sjálfsmorð í Guantanamó-fangabúðunum síðastliðinn miðvikudag. Í fangabúðunum sem Bandaríkjamenn halda úti á Kúbu dvelja hátt í fjögur hundruð manns og hafa sumir hverjir verið þar í allt að fimm ár án þess að mál þeirra hafi farið fyrir dómstóla.

Fangarnir njóta ekki þeirra réttinda sem stríðsföngum ber samkvæmt Genfarsáttmálanum og mega þeir sæta miskunnarlausum pyntingum og barsmíðum. Sádi-arabinn sem fyrirfór sér í gær var ekki sá fyrsti til þess að gera það í Guantanamó.

Upp á þetta getum við ekki horft aðgerðalaus og þaðan af síður verið virkir þátttakendur. Við vitum að Bandaríkjamenn hafa notað íslenska flugvelli í þeim tilgangi að flytja fanga í pyntingabúðir, hvort heldur á Guantanamó eða í leynilegu fangelsi í Austur-Evrópu. Umræddur aðili sem framdi sjálfsmorð á miðvikudaginn gæti allt eins verið einn þeirra „Íslandsvina“ sem hafa millilent hér á leið sinni til Guantanamó. Með þessum hætti eru Íslendingar óbeinir þátttakendur í skipulögðum mannréttindabrotum og er það ólíðandi með öllu. Ég skora á Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur utanríkisráðherra að fara fram á tafarlausa lokun Guantanamó-fangabúðanna á Kúbu eða segja að öðrum kosti upp varnarsamningnum við Bandaríkjamenn og neita þeim um afnot af íslenskum flugvöllum.

Höfundur er varaformaður Ungra jafnaðarmanna í Hafnarfirði.




Skoðun

Sjá meira


×