Erlendar eignir lífeyrissjóða fari í helming heildareigna 24. janúar 2007 05:00
Eggert Þór Aðalsteinsson skrifar Lífeyrissjóðirnir hafa vaxið hlutfallslega hraðar í erlendum eignum en þeim innlendu, samfara þeirri gríðarlegu aukningu sem orðið hefur á hreinum eignum þeirra á liðnum árum, einkum á síðustu tveimur árum. Lífeyrissjóðirnir, sem hafa fjárfest erlendis frá árinu 1994, hafa 42-faldað erlendar eignir sínar á einum áratug. Í lok nóvember voru þær komnar í rúma fjögur hundruð milljarða króna, sem svarar til rúmra 28 prósenta af hreinum eignum lífeyrissjóðanna. Til samanburðar voru erlendar eignir aðeins þrjú prósent af heildareignum í ársbyrjun 1997. Hrafn Magnússon, framkvæmdastjóri Landssamtaka lífeyrissjóða, býst við stöðugri aukningu erlendra eigna og sér það í hendi sér að á næsta áratug geti þær orðið allt að helmingur af heildareignum. Það fari þó eftir markaðsaðstæðum hverju sinni hversu mikið verður fjárfest erlendis. Samkvæmt reglum um lífeyrissjóði er þeim heimilt að eiga helming í erlendum eignum. „Lífeyrissjóðirnir eru markvisst að auka erlendar eignir og munu gera það áfram á næstu árum. Fyrir því eru ýmsar ástæður, meðal annars sú gamla og góða ástæða að það borgar sig ekki að vera með öll eggin í sömu körfunni þegar illa árar.“ Til fróðleiks bendir Hrafn á að ef lífeyrissjóðir beita gengisvörnum geti í raun og veru allar eignir verið erlendis, en slíkt sé auðvitað ekki raunhæft. Hrafn tekur ennfremur fram að mat á erlendum eignum fari einnig eftir því hvernig krónan þróist eins og sást berlega á síðasta ári þegar erlendu eignirnar jukust verulega með lækkun á gengi krónunnar. Erlendar eignir voru 24 prósent af heildareignum í ársbyrjun 2006 en voru komnar í 28 prósent í lok nóvember eins og áður sagði. Aðspurður um hvar lífeyrissjóðirnir hafa verið að fjárfesta erlendis segir hann að þeir hafi fyrst og fremst fjárfest í alþjóðlegum hlutabréfasjóðum. Slíkar eignir námu 238 milljörðum í lok nóvember. „Síðan hafa menn reynt fyrir sér bæði á skuldabréfamarkaði og ekki síður í óhefðbundnum fjárfestingum á síðustu misserum, aðallega framtakssjóðum [private equity], sem hafa skilað góðri ávöxtun fram til þessa.“
Mest lesið Thule lækkar í prósentu Neytendur Mango opnar í Kringlunni Viðskipti innlent Má gefa börnunum sínum peninga? Viðskipti innlent Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar Viðskipti innlent Á bak við stórar framkvæmdir eru stórar vélar Samstarf Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Viðskipti innlent Langflestir gera þessi mistök áður en þeir byrja að mála Samstarf „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Viðskipti innlent Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Viðskipti innlent Enn ríður Indó á vaðið Viðskipti innlent Fleiri fréttir Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Vélfagsmenn fóru bónleiðir til búðar frá Hæstarétti Setja 630 milljónir í að markaðssetja Ísland sem áfangastað Atvinnuleysi 5,6 prósent í maí Hagnaður Samherja nam um 8,5 milljörðum Stefna að uppbyggingu baðlóns og hótels í Grundarfirði Hafa samið um aukin raforkukaup á Blönduósi Ráðnir forstöðumenn hjá OK Sameining tveggja lífeyrissjóða samþykkt Gissur ráðinn framkvæmdastjóri OBHM Brynja til Fastus frá Samkaupum Efla ráðgjöf við nemendur HR um kjaramál „Hvað haldið þið að þetta kosti? Milljarða, milljarða, milljarða“ Sjá meira