Þegar umsækjendum er hafnað 24. janúar 2007 06:00 Sif Sigfúsdóttir, MA í mannauðsstjórnun.
Mikilvægt er að þeir sem ekki hafa verið valdir til starfa en hafa sótt um starf fái heiðarlegt höfnunarbréf, símtal eða tölvupóst. Þeir umsækjendur sem ekki verða fyrir valinu og fá hvorki skriflegt né munnlegt svar við umsóknum upplifa oft sterka höfnun. Í mörgum tilfellum hafa umsækjendur sent persónuleg gögn eins og einkunnir og ferilskrá til ráðningaraðila og vita oft ekkert hvað verður af gögnunum. Bréf eða tölvupóstur getur verið mikil hjálp fyrir þá sem velta fyrir sér hvers vegna þeir urðu ekki fyrir valinu og hvers vegna enginn boðaði þá í viðtal. Í greininni Life’s Work í dagblaðinu New York Times kemur fram að helsta form höfnunar hjá mörgum fyrirtækjum í dag sé þögnin ein. Talið er að sárafá fyrirtæki hugsi um ferli höfnunar og er ferlinu líkt við lélegt stefnumót, þar sem umsækjandi situr og bíður við síma eftir símtali sem aldrei kemur. Nokkrum mánuðum seinna er svo e.t.v. hringt í umsækjanda þegar fyrirtækið er í uppsveiflu og þarf á starfsmanninum að halda. Í greininni er ítrekað mikilvægi þess að hringja í umsækjendur eða senda þeim bréf í tíma, hvort sem um ráðningu eða höfnun er að ræða. Upplifun umsækjenda gagnvart fyrirtæki skiptir máli við höfnunarferli. Ferli og viðmót sem umsækjandi upplifir við ráðningarferlið getur mótað sýn hans til fyrirtækisins og sýn almennings er fyrirtækinu mikilvæg. Þá er vert að hafa í huga að þeir umsækjendur sem fá höfnun gætu verið framtíðarstarfsmenn fyrirtækisins eða jafnvel yfirmenn þess seinna meir. Mörg fyrirtæki standa sig vel í að senda bréf eða tölvupóst til þeirra sem er hafnað. Sum fyrirtæki senda stöðluð bréf á alla en önnur hafa látið hanna sérstök bréf þar sem innihald textans er úthugsað. Höfnunarbréf án réttlætingar og skýringar eru litin neikvæðari augum af umsækjendum en þau bréf sem gefa umsækjendum nánari skýringar. Því lengri tími sem líður án svars, því meiri gremju og ósanngirni fyllist umsækjandi. Til þess að koma í veg fyrir þetta þarf að senda öllum umsækjendum bréf tímanlega með viðeigandi upplýsingum. Sif Sigfúsdóttir, MA í mannauðsstjórnun.
Mest lesið Thule lækkar í prósentu Neytendur Mango opnar í Kringlunni Viðskipti innlent Má gefa börnunum sínum peninga? Viðskipti innlent Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar Viðskipti innlent Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Viðskipti innlent Langflestir gera þessi mistök áður en þeir byrja að mála Samstarf Á bak við stórar framkvæmdir eru stórar vélar Samstarf „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Viðskipti innlent Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Viðskipti innlent Enn ríður Indó á vaðið Viðskipti innlent Fleiri fréttir Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Vélfagsmenn fóru bónleiðir til búðar frá Hæstarétti Setja 630 milljónir í að markaðssetja Ísland sem áfangastað Atvinnuleysi 5,6 prósent í maí Hagnaður Samherja nam um 8,5 milljörðum Stefna að uppbyggingu baðlóns og hótels í Grundarfirði Hafa samið um aukin raforkukaup á Blönduósi Ráðnir forstöðumenn hjá OK Sameining tveggja lífeyrissjóða samþykkt Gissur ráðinn framkvæmdastjóri OBHM Brynja til Fastus frá Samkaupum Efla ráðgjöf við nemendur HR um kjaramál „Hvað haldið þið að þetta kosti? Milljarða, milljarða, milljarða“ Sjá meira