Viðskipti innlent

Hafa keypt fyrirtæki upp á 544 milljarða

Óli Kristján Ármannsson skrifar
Kaupþing á 78 prósent upphæðarinnar.
Kaupþing á 78 prósent upphæðarinnar.
Viðskiptabankarnir þrír hafa eytt sem svarar 544 milljörðum króna í helstu fyrir­tækjakaup og yfirtökur í vexti sínum utan landsteinanna síðustu ár. Til samanburðar má nefna að heildar­skuldir heimilanna við bankakerfið vegna húsnæðiskaupa voru heldur lægri en sú upphæð í lok september. Þá námu þær rúmum 458 milljörðum króna, samkvæmt tölum Seðlabanka Íslands.

Ljóst er að Kaupþing er langstórtækastur bankanna í kaupum og yfirtökum, en hann ber ábyrgð á 78 prósentum upphæðarinnar, eða rúmum 426 milljörðum króna miðað við gengi evru í gær. Þannig liggur við að af hverjum fimm krónum sem bankarnir hafa eytt í útrásina hafi Kaupþing borgað fjórar.

Kostnaður Kaupþings skiptist þannig að þrír milljarðar evra eru til komnir vegna kaupanna á hollenska bankanum NIBC. Singer & Friedlander kostaði bankann svo nálægt 800 milljónum evra, FIH í Danmörku kostaði einn milljarð evra og JP Nordiska litlar 100 milljónir evra. Samtals gera þessi kaup 4,9 milljarða evra, eða sem svarar 426 milljörðum króna.

Að baki tölum Landsbankans liggja svo meðal annars kaup á Heritable Bank, Teather & Greenwood, Kepler Securities, Merrion Capital og Bridgewell. Að baki kostnaðar Glitnis má svo meðal annars finna KredittBanken, BN Bank, Facto­Nor, Norse Securities og Union Group í Noregi, norræna fjármálafyrirtækisins Fischer Partners og FIM Group.

Kaupþing er sagt njóta þess í útrás sinni að hafa farið af stað í þann víking fyrstur íslenskra banka auk þess sem hann hafi einnig verið stórtækari í kaupum en hinir til þessa. Landsbankinn hefur kostað langminnstu til útrásarinnar til þessa en Sigurjón Þ. Árnason, bankastjóri bankans, segir ekki loku fyrir það skotið að bankinn muni gerast stórtækari í kaupum síðar meir. „Munurinn á starfseminni í dag og því sem áður var er ævintýralegur og við eðlilega betur í stakk búin að gera stærri hluti en áður," segir hann í úttekt í miðopnu Markaðarins. Þar kemur einnig fram að Glitnir nýtur mestrar sérstöðu í vali sínu á leið til vaxtar úti í hinum stóra heimi með svokallaðri syllumarkaðssetningu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×