Fjármálastjórn jafni frekar sveiflur Óli Kristján Ármannsson skrifar 17. október 2007 06:00 Hjá AGS í Washington DC.
Við stjórn opinberra fjármála gætum við horft til reynslu Belga og Hollendinga, segir í nýju vinnuskjali Anthony Annetts hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum (IMF). Hann bendir á að hér hafi opinber útgjöld haft tilhneigingu til að aukast í takt við hagsveiflu og ýta undir þenslu. Belgar og Hollendingar hafa tekið upp fjármálastjórnun þar sem horft er til lengri tíma en árs í senn. Þorsteinn Þorgeirsson, skrifstofustjóri efnahagsskrifstofu fjármálaráðuneytisins, segir að í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar sé rætt um að innleiða rammafjárlög til fjögurra ára. „Þá þarf að komast að pólitískri niðurstöðu um vægi allra útgjaldaflokka. Þetta er í deiglunni og verið að vinna að því að koma þessu í fastari umgjörð.“ Þorsteinn bendir á að einnig sé verið að ræða við Samband íslenskra sveitarfélaga um að koma að hagstjórninni með þátttöku í svokallaðri fjármálareglu, en ríkissjóður hefur fylgt slíkri reglu frá 2003. Með breytingum sem þessum segir Þorsteinn horft til þess að fjármálastjórn hins opinbera í heild verði sem mest sveiflujafnandi, en bendir um leið á að tölur um niðurstöðu opinberra fjármála frá 2003 sýni að gagnrýni á að ríkissjóður hafi ekki komið nægilega að hagstjórninni með Seðlabankanum sé að nokkru óréttmæt. „Ef einhvers staðar eru vandræði með heildarhagstjórnina þá varðar það virkni peningamálastefnunnar. Þar er kannski helsti vandinn verðtryggðu vextirnir en vegna þeirra finna heimilin seint fyrir stýrivaxtahækkunum,“ segir hann.
Mest lesið Ekkert blabla: Íslenska vinnumarkaðsmódelið deyjandi Atvinnulíf Ekki nægilegt traust á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Fasteignamarkaðurinn kólnar enn Viðskipti innlent Treble tryggir tvo milljarða í fjármögnun Viðskipti innlent Bensínlítrinn kosti 452 krónur fyrir eyðsluminni bíla Neytendur Fengu ekki bætur þrátt fyrir óhreint herbergi Neytendur Danir lærðu sína lexíu en Íslendingar rífist enn Viðskipti innlent Wolt sendlar lögðu niður störf Viðskipti innlent Hækkuðu stýrivexti í Bandaríkjunum í fyrsta skipti í þrjú ár Viðskipti erlent Gagnrýna tal um meðallaun upp á 1,4 milljónir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Treble tryggir tvo milljarða í fjármögnun Ekki nægilegt traust á fasteignamarkaði Fasteignamarkaðurinn kólnar enn Wolt sendlar lögðu niður störf Bein útsending: Atvinnu- og framkvæmdaþing Reykjanesbæjar Gagnrýna tal um meðallaun upp á 1,4 milljónir Frá Wise til VÍS Danir lærðu sína lexíu en Íslendingar rífist enn Ósanngjarnt að lítil ferðaþjónustufyrirtæki beri tjón af verkföllum flugstétta Íhlutun vegna kaupa Ása á Öryggismiðstöð og Opnum kerfum nauðsynleg Ekkert verður af kaupum Heklu á Bílson Byggja eitt stærsta gagnaver Íslands á Bakka Tveir nýir sérfræðingar til Jónsbókar Tæplega 50 milljarða halli hins opinbera á öðrum fjórðungi Útlitið ekki allt of gott í kjaradeilu flugvirkja Enn hnútur hjá flugmönnum Icelandair Telur yfir milljarð á dag í húfi Einn tíundi fékkst upp í hundruð milljóna króna gjaldþrot veitingamanns Gengið aldrei verið lægra Hafa samband við farþega Flugvirkjar fara í verkfall Hart tekist á um fjárlögin: „Hvað er að þessu liði?“ Rjúfa þurfi vítahringinn með breyttu vinnumarkaðslíkani Spurðu hvað fyrirtæki ætluðu að gera og hafa þegar fengið svar Ráðinn fjármálastjóri Háskólans á Bifröst Bein útsending: Hærri skattar, töpuð tækifæri? Atlantic Airways gefur eftir í samkeppni við Icelandair Jón Birgir ráðinn forstjóri Kviku Hætta á að gervigreindin geri fólk að „kjötstykkjum“ Vara við afleiðingunum Sjá meira