Skýrist í vikunni hvort leiðin er fær Óli Kristján Ármannsson skrifar 17. október 2007 06:00 Bréf Seðlabankans til Verðbréfaskráningar frá 14. og 19. september sl.
Í lok vikunnar eða byrjun næstu liggur fyrir hvort farin verður sú leið sem Seðlabankinn og Verðbréfaskráning mælast til við uppgjör evruhlutabréfa hér. Einar Sigurjónsson, forstjóri OMX Verðbréfaskráningar Íslands, segir líklegast að lausn sé fundin sem allir geti sætt sig við, en bankarnir hafi hana nú til skoðunar. Í bréfi sem Seðlabankinn ritar Verðbréfaskráningu 19. september er á það bent að þrátt fyrir að félögum hafi verið heimilað með lögum að ákveða hlutafé sitt í erlendri mynt hafi ekki verið kveðið á um hvernig ljúka ætti peningalegu uppgjöri viðskiptanna. Seðlabankinn, Verðbréfaskráning, Kauphöll og fjármálafyrirtæki hafa unnið að nýrri lausn síðan þá, en upphaflega stóð til að Landsbanki Íslands annaðist uppgjörið til bráðabirgða. Í sama bréfi kveðst Seðlabankinn „reiðubúinn til að annast til bráðabirgða og með takmörkuðum hætti peningalegt uppgjör viðskipta með rafrænt skráð hlutabréf í evrum“. Einar segir að með „takmörkuðum hætti“ vísi Seðlabankinn til þess að hann geti ekki stutt uppgjör í evrum með sama hætti og í krónum, einfaldlega vegna þess að bankinn gefi ekki út evrur. „Lausnin á hins vegar alveg að geta gengið, þetta er bara spurning um að finna bestu leiðina í henni,“ segir hann en fara á svipaða leið og ætlað var þegar stefndi í að Landsbankinn annaðist uppgjörið. „Bankarnir eru að takast á við sömu hluti og þyrfti hvort eð er að gera síðar varðandi uppgjör í annarri mynt en krónum. Þeir þurfa ákveðna fyrirgreiðslu, alveg eins og þyrfti ef farið væri í gegnum Seðlabanka Finnlands og það hjálpar bara síðar að hafa glímt við þetta.“ Einar segir hins vegar ljóst að áfram sé að því stefnt að vera með uppgjörið til framtíðar í seðlabanka í evrulandi og að einna helst hafi verið horft til Seðlabanka Finnlands í þeim efnum, enda annist hann evru-uppgjör fyrir sænsku kauphöllina. Hann segir hins vegar ljóst að miðað við túlkun Seðlabankans á ákvæði í lögum um rafræna eignaskráningu verðbréfa sé sú leið ófær að sinni og útlit fyrir að breyta þurfi þeim lögum.
Mest lesið Samherji gæti tvöfaldast Viðskipti innlent Hámark tvær vikur í heilsutengd áramótaheit með eiginkonunni Atvinnulíf Gert að afhenda búslóðina eftir að hafa haldið henni í gíslingu Neytendur Húðflúrari fór frá hálfkláruðum fugli á hálsi Neytendur Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf „Ásta mín, ef þú segir nei við þessu tilboði þá rek ég þig“ Atvinnulíf Komst ekki á toppinn og bótakröfunni hafnað Neytendur Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Viðskipti innlent Ný tækni, ný kynslóð, ný viðhorf: Yngsti sölumaðurinn eins árs Atvinnulíf Fær íshellaferð ekki endurgreidda Neytendur Fleiri fréttir Samherji gæti tvöfaldast Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Sjá meira