Aung San áfram í fangelsi Óli Tynes skrifar 25. maí 2007 13:51 Aung San Suu Kyi.
Herforingjastjórnin í Myanmar hefur framlengt stofufangelsi yfir andófskonunni Aung San Suu Kyi í eitt ár. Aung San er þekktasti pólitíski fangi Myanmars, sem áður hét Burma. Hún hefur hlotið friðarverðlaun Nóbels og flokkur hennar vann yfirburðasigur í kosningum árið 1990. Herforingjastjórnin neitaði að viðurkenna úrslitin og sat sem fastast. Aung San hefur verið í stofufangelsi meira og minna síðan árið 1989. Henni er haldið í einangrun í húsi sínu. Hún hefur engan síma, póstur hennar er ritskoðaður og mjög er takmarkað hverjir fá að heimsækja hana. Andófskonan er nú sextíu og eins árs gömul. Faðir hennar var þjóðhetja í Burma sem var myrtur þegar hún var tveggja ára gömul. Það var sex mánuðum áður en Burma fékk sjálfstæði frá Bretum. Faðirinn átti stóran hlut í samningunum sem leiddu til sjálfstæðis. Aung San las heimspeki, stjórnmálafræði og hagfræði við Oxford háskóla í Bretlandi. Hún kvæntist breskum lærdómsmanni, Michael Aris. Þegar hann lést í Bretlandi árið 1999 hafnaði hún boði herforingjastjórnarinnar um að fara og vera við jarðarför hans. Hún þóttist viss um að hún fengi ekki að snúa heim aftur.
Erlent Mest lesið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Lækkar eigin laun Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Fleiri fréttir Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post Sjá meira