Gjaldmiðillinn er stærsta málið Óli Kristján Ármannsson skrifar 18. september 2007 06:00 Erlendur Hjaltason Formaður Viðskiptaráðs segir megintilgang ráðsins vera, líkt og ávallt, að gæta hagsmuna viðskiptalífsins. Fréttablaðið/Rósa
Stærsta einstaka ákvörðun sem stjórnvöld standa frammi fyrir varðar framtíð krónunnar, að því er fram kom í máli Erlends Hjaltasonar, formanns Viðskiptaráðs, í níutíu ára afmæli samtakanna í Salnum í Kópavogi í gær. „Á undanförnum misserum hefur peningahagstjórn ekki skilað þeim árangri sem henni er ætlað,“ segir Erlendur. Hann kveður ástæður þessa margþættar, en afleiðinguna sveiflukenndan gjaldmiðil og háa stýrivexti. „Til að skapa fyrirtækjum stöðugt og hagfellt umhverfi er mikilvægt að gera hér bragarbót. Viðskiptaráð telur mikilvægt að halda uppi faglegri og virkri umræðu um stöðu krónunnar og mun ekki skorast undan ábyrgð sem leiðandi aðili í þeirri umræðu.“ Þótt ríkisstjórnin hafi lokið sínum fyrstu níutíu dögum við völd sé ekki þar með sagt að tónninn hafi verið sleginn í störfum hennar. „Ég tel að næstu níutíu dagar, upphaf þings og þau störf sem fram undan eru tengd því, muni gefa til kynna hvers megi vænta,“ segir formaður viðskiptaráðs. Viðskiptaráð gaf út í tilefni af afmælinu lista með níutíu tillögum sem miða að því að bæta samkeppnishæfni landsins, viðskiptaumhverfi og framtíðarhorfur. Erlendur segist vonast til að listinn verði frjósamur jarðvegur nýrrar ríkisstjórnar sem með styrkum meirihluta hafi möguleika á að hrinda mikilvægum málum í framkvæmd.
Mest lesið „Maður er reiður og sár“ Viðskipti innlent Langflestir gera þessi mistök áður en þeir byrja að mála Samstarf Verðhækkanirnar vonbrigði Viðskipti innlent Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Viðskipti innlent Gert að afhenda kúnnanum nýjan eyrnahreinsi með myndavél Neytendur Uppsagnir fram undan og óttinn vex Atvinnulíf Opinberir starfsmenn eigi rétt á sjöfalt fleiri veikindadögum Viðskipti innlent Verðbólga eykst lítillega Viðskipti innlent „Ég fæ oft kaffibolla í rúmið og svoleiðis stund er heilög!” Atvinnulíf Þórunn og Svali til Íslandsbanka Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Vélfagsmenn fóru bónleiðir til búðar frá Hæstarétti Setja 630 milljónir í að markaðssetja Ísland sem áfangastað Atvinnuleysi 5,6 prósent í maí Hagnaður Samherja nam um 8,5 milljörðum Stefna að uppbyggingu baðlóns og hótels í Grundarfirði Hafa samið um aukin raforkukaup á Blönduósi Ráðnir forstöðumenn hjá OK Sameining tveggja lífeyrissjóða samþykkt Gissur ráðinn framkvæmdastjóri OBHM Brynja til Fastus frá Samkaupum Efla ráðgjöf við nemendur HR um kjaramál „Hvað haldið þið að þetta kosti? Milljarða, milljarða, milljarða“ Klára kaupin á Ofar og leita að nýjum framkvæmdastjóra Laufey nýr sérfræðingur hjá Landsbankanum Eykur strandveiðikvóta og gerir vertíðina þá „stærstu frá upphafi“ Tæplega 4,6 milljarða tap á rekstri borgarinnar Lægsta matvöruverðið enn oftast að finna í Prís Rakel nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Segir ríkar ástæður fyrir því að flugmenn eigi að vera vel launaðir Alvotech aflaði 20,6 milljarða í útboði og áskriftum Sjá meira