Til bæjarstjóra Vestmannaeyinga 24. ágúst 2007 06:00 Bæjarstjórinn í Vestmannaeyjun, Elliði Vignisson, sendi mér tóninn í Fréttablaðinu á miðvikudag. Talar hann um „draugasögur“ og „dómsdagsspár“ og gerir lítið úr þátttöku minni í umræðunni um samgöngur á sjó til Vestmannaeyja. Sem skipstjóri um árabil, þekkjandi sjólag og allar aðstæður við Suðurströndina, og nú sem þingmaður Suðurkjördæmis tel ég mér skylt að taka þátt í umræðunni um fyrirhugaða hafnargerð í Bakkafjöru. Ég hef m.a. vakið athygli á rifinu fyrir framan fyrirhugaða höfn og varað við því að þar gætu skapast hættulegar aðstæður, ef ekki vær farið í fullnægjandi framkvæmdir, strax í upphafi, til að lágmarka hættuna á grunnbrotum. Um lengingu varnargarða segir Elliði: „Hið sanna er að lenging garða um 300 metra hefur enga skynsamlega samsvörun við verkefnið og skilar engum ábata nema síður sé.“ Það væri synd að segja að bæjarstjórinn þjáðist af hógværð og minnimáttarkend. Í stað þess að taka ábendingum um það sem betur mætti fara fagnandi og koma þeim áleiðis í umræðunni og undirbúningi, þá gerir hann lítið úr þeim. Það lýsir ekki mikilli dómgreind heldur hroka sem bæjarstjórinn þyrfti að losa sig við. Ef tekst að byggja hafnarmannvirki í Bakkafjöru, sem eru örugg og fullnægjandi fyrir Vestmannaeyinga, þá fagna ég því. En í mínum huga er það verkefni vandasamt og ekki hafið yfir gagnrýni og málefnalega umræðu. Ef litið er til framtíðar sýnist mér að höfn í Bakkafjöru muni geta minnkað umsvif úti í Eyjum frá því sem nú er. Löndun á fiski gæti færst í Bakkafjöru og ýmis þjónusta, sem nú fer fram í Eyjum, gæti færst upp á land. Framtíðin mun skera úr um hvort Bakkafjöruhöfn muni leysa samgöngumál Vestmannaeyinga á sjó með fullnægjandi hætti. Ég hvet til þess, enn og aftur, að allar hliðar málsins verði skoðaðar betur, áður en endanlegar ákvarðanir verða teknar. Það er nóg komið af skyndiákvörðunum stjórnvalda og nægir þar að minnast á Grímseyjarferjuna. Að lokum skal þeirri hugmynd varpað fram að Elliði bæjarstjóri beiti sér fyrir Því að Vestmannaeyingar fái tækifæri til að kjósa um hvort þeir vilja höfn í Bakkafjöru eða hraðskreiðari nýjan Herjólf sem sigli til Þorlákshafnar eins og verið hefur til þessa. Höfundur er þingmaður Frjálslynda flokksins fyrir Suðurkjördæmi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hvers vegna blaktir palestínski fáninn í Gleðigöngunni? Elí Hörpu- og Önundarbur,Bashar Murad Skoðun Hvernig tryggjum við börnum okkar framtíð á Íslandi? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Blásum til sóknar í menntun með bættum námsgögnum Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir Skoðun The First Yes Is the Crucial Vote Carl Baudenbacher Skoðun Halldór 08.08.26 Halldór Myndum borga fyrir inngöngu Svartfjallalands Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Ég hélt að friðurinn væri kominn Sigurður Árni Reynisson Skoðun B verður 8 – umbætur eða umbúðaskipti? Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Mikilvægasta Gleðigangan Hanna Katrín Friðriksson Skoðun Við megum ekki gefa eftir Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hvernig tryggjum við börnum okkar framtíð á Íslandi? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Hvers vegna blaktir palestínski fáninn í Gleðigöngunni? Elí Hörpu- og Önundarbur,Bashar Murad skrifar Skoðun B verður 8 – umbætur eða umbúðaskipti? Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Ég hélt að friðurinn væri kominn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Við megum ekki gefa eftir Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Blásum til sóknar í menntun með bættum námsgögnum Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir skrifar Skoðun Sameinumst undir regnboganum: Jafnrétti, inngilding og stolt Clara Ganslandt skrifar Skoðun Mikilvægasta Gleðigangan Hanna Katrín Friðriksson skrifar Skoðun Sjöunda þversögn gervigreindar Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Myndum borga fyrir inngöngu Svartfjallalands Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun The First Yes Is the Crucial Vote Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Sameiginlegur þekkingargrunnur að glatast? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Bæjarstjórnarmyrkrið: Þegar einokunarleyfishafinn gat ekki kveikt ljósið Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Barátta intersex fólks standi styrkum fótum Daníel E. Arnarsson skrifar Skoðun JÁkvæður kvikmyndaframleiðandi Grímar Jónsson skrifar Skoðun Hvað ætlar þú að gera við tímann sem gervigreindin gefur þér? Þórdís Jóna Ingigerðardóttir skrifar Skoðun Hverju myndi evran skila? - svar til Ásdísar Kristjánsdóttur Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Eigi veldur sá er varar Sigurgeir B. Kristgeirsson skrifar Skoðun Hvað ef ...? Brynjar M. Ólafsson skrifar Skoðun Hlógu þeir líka að Sviss, Ólafur Ragnar? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Námsmat og einkunnir: Áskoranir og viðhorf Erna Ingibjörg Pálsdóttir skrifar Skoðun Af sannleiksást og vinnuréttindum Vilborg Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Öndum í poka! Ísland verður í lagi Jóhannes Óli Sveinsson skrifar Skoðun Íslensk, sænsk eða engin króna Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Hinir miklu alvitringar Baldur Vignir Karlsson skrifar Skoðun Evrópuherinn og hlutur Íslendinga Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Var þetta kosningaloforðið? Fannar Logi Waldorff Sigurðsson skrifar Skoðun Mín kynslóð brást! Margrét Kristmannsdóttir skrifar Skoðun Kerfið sem síar fjármuni út úr ríkissjóði bakdyramegin Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Hvaða áhrif hefur það á hlaupara að hlaupa fyrir góðan málstað? Þórdís Lilja Gísladóttir skrifar Sjá meira
Bæjarstjórinn í Vestmannaeyjun, Elliði Vignisson, sendi mér tóninn í Fréttablaðinu á miðvikudag. Talar hann um „draugasögur“ og „dómsdagsspár“ og gerir lítið úr þátttöku minni í umræðunni um samgöngur á sjó til Vestmannaeyja. Sem skipstjóri um árabil, þekkjandi sjólag og allar aðstæður við Suðurströndina, og nú sem þingmaður Suðurkjördæmis tel ég mér skylt að taka þátt í umræðunni um fyrirhugaða hafnargerð í Bakkafjöru. Ég hef m.a. vakið athygli á rifinu fyrir framan fyrirhugaða höfn og varað við því að þar gætu skapast hættulegar aðstæður, ef ekki vær farið í fullnægjandi framkvæmdir, strax í upphafi, til að lágmarka hættuna á grunnbrotum. Um lengingu varnargarða segir Elliði: „Hið sanna er að lenging garða um 300 metra hefur enga skynsamlega samsvörun við verkefnið og skilar engum ábata nema síður sé.“ Það væri synd að segja að bæjarstjórinn þjáðist af hógværð og minnimáttarkend. Í stað þess að taka ábendingum um það sem betur mætti fara fagnandi og koma þeim áleiðis í umræðunni og undirbúningi, þá gerir hann lítið úr þeim. Það lýsir ekki mikilli dómgreind heldur hroka sem bæjarstjórinn þyrfti að losa sig við. Ef tekst að byggja hafnarmannvirki í Bakkafjöru, sem eru örugg og fullnægjandi fyrir Vestmannaeyinga, þá fagna ég því. En í mínum huga er það verkefni vandasamt og ekki hafið yfir gagnrýni og málefnalega umræðu. Ef litið er til framtíðar sýnist mér að höfn í Bakkafjöru muni geta minnkað umsvif úti í Eyjum frá því sem nú er. Löndun á fiski gæti færst í Bakkafjöru og ýmis þjónusta, sem nú fer fram í Eyjum, gæti færst upp á land. Framtíðin mun skera úr um hvort Bakkafjöruhöfn muni leysa samgöngumál Vestmannaeyinga á sjó með fullnægjandi hætti. Ég hvet til þess, enn og aftur, að allar hliðar málsins verði skoðaðar betur, áður en endanlegar ákvarðanir verða teknar. Það er nóg komið af skyndiákvörðunum stjórnvalda og nægir þar að minnast á Grímseyjarferjuna. Að lokum skal þeirri hugmynd varpað fram að Elliði bæjarstjóri beiti sér fyrir Því að Vestmannaeyingar fái tækifæri til að kjósa um hvort þeir vilja höfn í Bakkafjöru eða hraðskreiðari nýjan Herjólf sem sigli til Þorlákshafnar eins og verið hefur til þessa. Höfundur er þingmaður Frjálslynda flokksins fyrir Suðurkjördæmi.
Skoðun Hvers vegna blaktir palestínski fáninn í Gleðigöngunni? Elí Hörpu- og Önundarbur,Bashar Murad skrifar
Skoðun Blásum til sóknar í menntun með bættum námsgögnum Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir skrifar
Skoðun Bæjarstjórnarmyrkrið: Þegar einokunarleyfishafinn gat ekki kveikt ljósið Arnar Sigurðsson skrifar
Skoðun Hvað ætlar þú að gera við tímann sem gervigreindin gefur þér? Þórdís Jóna Ingigerðardóttir skrifar
Skoðun Hvaða áhrif hefur það á hlaupara að hlaupa fyrir góðan málstað? Þórdís Lilja Gísladóttir skrifar