Virði SPRON hátt yfir verðmati Capacent 15. ágúst 2007 04:15
Þegar lokað var fyrir með viðskipti á stofnfjárbréfum í SPRON þann 7. ágúst var stofnfé sparisjóðsins metið á rúma 103 milljarða króna. Samkvæmt verðmati Capacent ráðgjafar, sem unnið var vegna hlutafjárvæðingar sparisjóðsins, er SPRON metinn á 59,4 milljarða króna. Því munar um 43,6 milljörðum króna á markaðsverði SPRON við lokun stofnfjárviðskipta og því verðmati Capacent sem haft er til hliðsjónar. Guðmundur Hauksson, sparisjóðsstjóri SPRON, bendir á að verðmat Capacent miðist við 1. apríl en frá þeim tímapunkti hefur almenn hækkun orðið á félögum. Boðað hefur verið til stofnfjáreigendafundar næsta þriðjudag þar sem lagt verður til að þessi stærsti sparisjóður landsins sameinist hlutafélaginu SPRON. „Við teljum að þessi breyting muni auðvelda okkur annars vegar að sækja aukið eigið fé í formi hlutafjár og hins vegar aðgang að lánsfé,“ segir Guðmundur. Samkvæmt samrunaáætlun hækkar nafnverð hlutafjár í SPRON hf. um fimm milljarða króna í tengslum við samrunann og fá stofnfjáreigendur um 85 prósent þeirrar upphæðar í skiptum fyrir stofnfjárbréf sín. Restin rennur til sjálfseignarstofnunarinnar SPRON-sjóðsins sem fær um 750 milljónir króna að nafnverði eða 8,9 milljarða að markaðsvirði. Þá er lagt til við hluthafafund að stjórn fái heimild til að hækka hlutafé um hálfan milljarð króna að nafnverði. Guðmundur segir að samþykki stofnfjáreigendur breytinguna fari boltinn til Fjármálaeftirlitsins. „Samþykki FME þetta þá hefst næsti áfangi að reyna að fá skráningu í Kauphöllina.“
Mest lesið Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Fimm frumkvöðlar: Afarnir, pabbarnir og nú 10 ára sonurinn Atvinnulíf Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Viðskipti innlent „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Sjá meira