Vesturdeildin í sérflokki 19. febrúar 2007 20:30 Dallas er með besta vinningshlutfallið í NBA um stjörnuhelgina AFP
Deildarkeppnin í NBA deildinni hefst aftur annað kvöld eftir árlegt hlé sem gert er á keppni vegna stjörnuleiksins. Þegar rýnt er í tölfræðina er ljóst að Vesturdeildin er með sögulega yfirburði á Austurdeildina hvað varðar vinningshlutfall fyrir stjörnuleik. Um stjörnuhelgina á enn eftir að spila um 2/5 hluta deildarkeppninnar, en þegar hér er komið við sögu eru liðin fimm sem hafa besta vinningshlutfallið í deildinni öll í Vesturdeildinni. Þetta eru Dallas, 44-9 (.830); Phoenix, 39-13 (.750); Utah, 35-17 (.673); San Antonio, 35-18 (.660); og Houston, 33-19 (.635). Þetta er í fyrsta skipti sem liðin með fimm bestu vinningshlutföllin eru öll í sömu deild og þangað til í ár hafa aðeins liðin með þrjú bestu vinningshlutföllin komið úr sömu deild. Eins og áður sagði hefst deildarkeppnin í NBA á ný annað kvöld, en þá verður leikur Milwaukee og Detroit sýndur beint á NBA TV sjónvarpsstöðinni. Á miðvikudagskvöldið verður leikur Toronto og Cleveland sýndur beint á NBA TV á miðnætti, en sá leikur verður svo sýndur á sjónvarpsstöðinni Sýn á föstudagskvöldið. Þar er á ferðinni afar athyglisverður leikur þar sem Toronto hefur verið eitt heitasta liðið í Austurdeildinni undanfarið. Með liðinu leikur skemmtileg blanda Bandaríkjamanna og Evrópumanna og kominn tími til fyrir áhorfendur Sýnar að sjá þetta skemmtilega lið.
NBA Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti Svona missti Aron markið sögulega Fótbolti Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Er skrefareglan dauð í NBA? Körfubolti Fleiri fréttir „Fjandinn hafi það, þetta versnar varla úr þessu“ Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Er skrefareglan dauð í NBA? Bestu byrjanir táninga í körfunni: Gerði betur en Tryggvi og Jón Arnór Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Uppgjörið: Grindavík-Keflavík 89-75 | Grindavíkurkonur á skriði og eru taplausar á toppnum Reiður LeBron lét stuðningsmenn Knicks heyra það Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Lagði meistarana í fyrsta leik með nýju liði Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Sjá meira