Barnið vex en brókin ekki Jón Skaftason skrifar 18. júlí 2007 05:15 Framkvæmdastjóri Nordvest segist taka athugasemdir FME alvarlega en gerir þó athugasemdir við framsetninguna. markaðurinn/e.Ól.
Jón Skaftason„Við erum búnir að bæta úr þeim göllum sem FME gerði athugasemdir við,“ segir Skúli Sveinsson, framkvæmdastjóri verðbréfafyrirtækisins Nordvest. Fjármálaeftirlitið gerði á dögunum opinberar athugasemdir sínar í kjölfar úttektar á starfsemi Nordvest sem framkvæmd var í febrúar og mars á þessu ári. Sveinn segir fyrirtækið hafa vaxið hratt á árinu og að innviðirnir hafi hreinlega ekki þolað þann mikla vöxt. Talið var að Nordvest hefði brotið gegn 6., 13. og 14. gr laga um verðbréfaviðskipti, en samkvæmt 15. grein laganna ber fjármálafyrirtæki að setja reglur sem tryggja að ofangreindum lagagreinum verði fylgt. Slíkar verklagsreglur höfðu hins vegar ekki verið settar. Fram kemur í tilkynningu frá FME að ekki hafi verið haldið sérstaklega utan um viðskipti starfsmanna og stjórnenda, jafnvel hafi tíðkast að starfsmenn framkvæmdu sjálfir eigin viðskipti. Einnig er tekið fram að stjórnendur Nordvest hafi ekki virt leiðbeinandi tilmæli FME um lágmarks eignarhaldstíma hluabréfa, og að dæmi hafi verið um að starfsmenn seldu hlutabréf sama dag og þau höfðu verið keypt. Þá hafi komið fram í reglum Nordvest að um sérkjör starfsmanna fari samkvæmt gjaldskrá, en slík gjaldskrá hafi hins vegar ekki verið til. Loks gerir FME athugasemdir við að ekki hafi verið farið að lögum og reglum um aðgreiningu starfssviða, og að starfsmenn hafi starfað samtímis á fleiri en einu starfssviði. Skúli segist taka athugasemdir FME mjög alvarlega en bendir þó á að lög um verðbréfaviðskipti séu smærri fyrirtækjum mjög þung í vöfum „Þetta er einfaldlega þannig að barnið vex en brókin ekki. Hér voru aðeins tveir starfsmenn í upphafi árs. Síðan hafa verið ráðnir þrír til viðbótar og þar af einn til að vinna sérstaklega í umbótum á verklagsreglum og öðru.“ Skúli er jafnframt ósáttur við framsetningu FME. Í tilkynningu kemur fram að starfsmenn Nordvest hafi í einhverjum tilfellum framkvæmt sjálfir eigin viðskipti „Mér finnst þetta röng framsetning. Þetta kom einu sinni fyrir og við tókum á því þegar það uppgötvaðist. Starfsmaðurinn sem í hlut átti var beðinn um að gera þetta ekki aftur. Um var að ræða mistök sem skrifast á reynsluleysi.“ Starfsmaðurinn sem um ræðir vinnur enn hjá Nordvest. Stjórn Nordvest hefur nú sett félaginu verklagsreglur og regluvörður verið ráðinn. Skúli segir að umbætur hafi verið hafnar áður en Fjármálaeftirlitið framkvæmdi úttekt sína „Okkar stefna er að hafa þessi mál í fullkomnu lagi, vaxtarverkirnir eru yfirstaðnir og við höfum ráðið hingað færustu sérfræðinga landsins til að sjá til þess.“ Fjármálaeftirlitið tjáir sig ekki um málið á þessu stigi. Venjan ku þó vera sú að fyrirtækjum er gefinn tími til úrbóta áður en gripið er til refsiviðurlaga. Samkvæmt 2. og 3. mgr 74. greinar laga um verðbréfaviðskipti er eftirlitinu heimilt að beita stjórnvaldssektum allt frá fimmtíu þúsund krónum til fimmtíu milljóna fyrir brot af þessu tagi. Önnur úrræði kunna að vera dagsektir og févíti samkvæmt lögum um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi.
Mest lesið Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Fimm frumkvöðlar: Afarnir, pabbarnir og nú 10 ára sonurinn Atvinnulíf Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Viðskipti innlent „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Sjá meira