Heimska og ábyrgðarleysi 2. apríl 2007 05:00 Ég furða mig á endalausri heimsku og ábyrgðarleysi stjórnarandstöðunnar í öryggismálum. Þingmönnum stjórnarandstöðunnar þykir greinilega meira um vert að koma ódýrum skotum á dómsmálaráðherra, en að taka á málinu af alvöru. Flest ríki líta á það sem frumskyldu að tryggja öryggi þegna sinna. Lítum til okkar nánustu vina. Danmörk, Noregur, Svíþjóð og Finnland eru friðsöm og góð lönd sem vilja öllum vel. Þau telja engu að síður skyldu sína að halda úti bæði umtalsverðum herafla og öflugum leyniþjónustum. Þar eru leyniþjónustur bæði innan hers og lögreglu. Það þykir bara sjálfsagður hlutur. Ísland er ekki lengur utan alfaraleiðar. Hingað kemur allskonar fólk úr öllum áttum. Eins og til Bali. Eins og til Spánar. Eins og til Bretlands. Svo nefnd séu nokkur ríki sem hafa orðið fyrir árásum illmenna. Til skamms tíma voru Íslendingar nokkuð vel í sveit settir, með bandarískt herlið í landinu. Nú eru mjög breyttir tímar. Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra, reynir að bregðast við þeim breytingum með því að efla öryggisgæslu í landinu. Öryggisgæsla á Íslandi byggist á tveim póstum. Landhelgisgæslunni og lögreglunni. Verið er að gera mikið átak til þess að styrkja Gæsluna. Nú er leitað leiða til þess að styrkja lögregluna. Meðal annars er rætt um að koma upp varaliði. Það kallar Össur Skarphéðinsson “tindátaleik fyrir fullorðna.” Í þessum skætingi kristallast afstaða stjórnarandstöðunnar í öryggismálum Íslendinga. Þetta hafa verið hennar viðbrögð við nánast öllu sem velt hefur verið upp. Það er ekki sæmandi alþingismönnum að tala svona. Jafnvel þótt þeir séu í stjórnarandstöðu. Höfundur er fréttamaður. Öryggisgæsla á Íslandi byggist á tveim póstum. Landhelgisgæslunni og lögreglunni. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Reykjavík sem gerir okkur stolt Pétur Marteinsson Skoðun Óvenju mikið í húfi Skúli Helgason Skoðun Hvernig samfélag er Kópavogur? Jónas Már Torfason Skoðun Veljum samfélag þar sem enginn er skilinn eftir Sindri S. Kristjánsson Skoðun Ekki kjósa Björgu, konuna mína Tryggvi Hilmarsson Skoðun Borgarlínan er háskaleg tilraun Karólína Jónsdóttir Skoðun Reykjavík þarf Regínu Alma D. Möller Skoðun Umferðinni beint inn í Laugardal og Háaleiti Friðjón R. Friðjónsson Skoðun Má bjóða þér nokkra milljarða? Róbert Ragnarsson Skoðun Þakklátur fyrir traustið Valdimar Víðisson Skoðun Skoðun Skoðun Vaxtarmörk Samfylkingarinnar Orri Björnsson skrifar Skoðun Tölurnar tala sínu máli Guðmundur Claxton skrifar Skoðun Var orðalag spurningarinnar mótað í Brussel? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Um menningarstefnur og borgarpólitík Anna Hildur Hildibrandsdóttir skrifar Skoðun Veljum samfélag þar sem enginn er skilinn eftir Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Á bak við heimilisleysi eru einstaklingar með sögu Viðar Gunnarsson skrifar Skoðun Við erum lið Bjarni Fritzson skrifar Skoðun Er Borgarlínan óþörf og illa hugsuð framkvæmd á tíma tækni og breytinga? Sigfús Aðalsteinsson skrifar Skoðun Bónda í Húsdýragarðinn Herdís Magna Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Það þarf heilt þorp til að ala upp barn, en þorpið er vanfjármagnað Björn Rúnar Guðmundsson skrifar Skoðun Botnvarpan, kórallarnir og þögn Hafró Þórólfur Júlían Dagsson skrifar Skoðun Pissandi kýr og hörmungar – Nakba í 78 ár Viðar Hreinsson skrifar Skoðun Til varnar Gísla Marteini og Borgarlínu Ingólfur Harri Hermannsson skrifar Skoðun Fæði, klæði, húsnæði Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun Umferðinni beint inn í Laugardal og Háaleiti Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Ekki kjósa Björgu, konuna mína Tryggvi Hilmarsson skrifar Skoðun Kynslóðaskipti í Kópavogi María Ellen Steingrímsdóttir skrifar Skoðun Garðabær má ekki staðna Viðar Kristinsson skrifar Skoðun Takk Reykvíkingar – stolt af því sem við áorkuðum saman Ellen Calmon skrifar Skoðun Fólkið í Hveragerði skiptir öllu máli Þorsteinn Hjartarson skrifar Skoðun Af hverju ætti ungt fólk að kjósa 16. maí? Gunnar Pétur Haraldsson skrifar Skoðun Má bjóða þér nokkra milljarða? Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Sem tveggja barna móðir Sigríður Þóra Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun Hvernig samfélag er Kópavogur? Jónas Már Torfason skrifar Skoðun Þegar kerfið ver kerfið en ekki borgarana. Reynslusaga Intuens af íslensku stjórnkerfi síðustu þrjú ár Steinunn Erla Thorlacius skrifar Skoðun Óvenju mikið í húfi Skúli Helgason skrifar Skoðun Þakklátur fyrir traustið Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Reykjavík sem gerir okkur stolt Pétur Marteinsson skrifar Skoðun Húsnæðisvandinn er mannanna verk Guðbjörg Ingunn Magnúsdóttir skrifar Skoðun Breytum þessu! Jón Guðni Guðmundsson skrifar Sjá meira
Ég furða mig á endalausri heimsku og ábyrgðarleysi stjórnarandstöðunnar í öryggismálum. Þingmönnum stjórnarandstöðunnar þykir greinilega meira um vert að koma ódýrum skotum á dómsmálaráðherra, en að taka á málinu af alvöru. Flest ríki líta á það sem frumskyldu að tryggja öryggi þegna sinna. Lítum til okkar nánustu vina. Danmörk, Noregur, Svíþjóð og Finnland eru friðsöm og góð lönd sem vilja öllum vel. Þau telja engu að síður skyldu sína að halda úti bæði umtalsverðum herafla og öflugum leyniþjónustum. Þar eru leyniþjónustur bæði innan hers og lögreglu. Það þykir bara sjálfsagður hlutur. Ísland er ekki lengur utan alfaraleiðar. Hingað kemur allskonar fólk úr öllum áttum. Eins og til Bali. Eins og til Spánar. Eins og til Bretlands. Svo nefnd séu nokkur ríki sem hafa orðið fyrir árásum illmenna. Til skamms tíma voru Íslendingar nokkuð vel í sveit settir, með bandarískt herlið í landinu. Nú eru mjög breyttir tímar. Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra, reynir að bregðast við þeim breytingum með því að efla öryggisgæslu í landinu. Öryggisgæsla á Íslandi byggist á tveim póstum. Landhelgisgæslunni og lögreglunni. Verið er að gera mikið átak til þess að styrkja Gæsluna. Nú er leitað leiða til þess að styrkja lögregluna. Meðal annars er rætt um að koma upp varaliði. Það kallar Össur Skarphéðinsson “tindátaleik fyrir fullorðna.” Í þessum skætingi kristallast afstaða stjórnarandstöðunnar í öryggismálum Íslendinga. Þetta hafa verið hennar viðbrögð við nánast öllu sem velt hefur verið upp. Það er ekki sæmandi alþingismönnum að tala svona. Jafnvel þótt þeir séu í stjórnarandstöðu. Höfundur er fréttamaður. Öryggisgæsla á Íslandi byggist á tveim póstum. Landhelgisgæslunni og lögreglunni.
Skoðun Er Borgarlínan óþörf og illa hugsuð framkvæmd á tíma tækni og breytinga? Sigfús Aðalsteinsson skrifar
Skoðun Það þarf heilt þorp til að ala upp barn, en þorpið er vanfjármagnað Björn Rúnar Guðmundsson skrifar
Skoðun Þegar kerfið ver kerfið en ekki borgarana. Reynslusaga Intuens af íslensku stjórnkerfi síðustu þrjú ár Steinunn Erla Thorlacius skrifar