Létta, leiðin ljúfa 14. júní 2007 06:00 Létta, leiðin, ljúfa var ekki farin þegar Norðmenn sendu okkur nýlega óvænt 2-3 milljónir tonna af norsku síldinni og við erum byrjaðir að veiða hana austur af Íslandi. Nú mætti skamma Norðmenn, sögðu menn, og heimta meiri kvóta af þessari síld, þar sem hún værir íslensk ekki síður en norsk, enda töluðu íslenskir ráðamenn þannig. Sendu Norðmönnum tóninn. Ekki var þetta „dipló“ eins og sagt er stundum. Var hrein móðgun við Norðmenn. Við áttum að bjóða Norðmönnum hingað á síldar-þakkarhátíð fyrir að senda okkur hluta af sinni norsku síld. Okkur vantar ekki meiri kvóta í norsku síldinni. Það þarf aukna friðun á norsku sídinni svo hingað komi 10 milljón tonn af norskri síld á sumrin og myndi það gjörbreyta hér öllu lífríki í sjónum til góðs. Næg fæða fyrir þorskinn. Við eigum að skála við Norðmenn þakkarskál fyrir að senda okkur óvænt 2-3 milljónir tonna af sinni norsku síld. Vera „dipló“. Læra það einu sinni. Við getum farið með gestina að Reykholti, þar sem Ólafur krónprins afhjúpaði styttu af Snorra Sturlusyni fyrir meira en hálfri öld. Um leið og krónprinsinn stóð upp til að afhjúpa Snorra sagði hann ofur lágt við næsta mann: „Hvað heitir nú bölvaður karlinn aftur?“ Þetta sagði mér maður sem sat rétt hjá krónprinsinum og hlustaði sjálfur á þessi orð. Snorri stendur alveg undir þessari sögu en móðgi ég Norðmenn þá bið ég afsökunar fyrirfram. Svo má fara með Norðmenn á Þingvöll, þar sem landnámsmenn frá Noregi héldu einn fyrsta þingfund í heimi nýkomnir frá Noregi. Annars eigum við að ganga í pólitískt og líka herbandalag við Noreg og láta norska stórabróður ráða ferðinni en fá örlítið meiri síldarfriðun á móti. Verða hálfir Norðmenn. Svo bjóðum við norskum hershöfðingjum í síldarboð okkar á þakkargjörðardaginn út af því að nú hafa Norðmenn fært okkur 2-3 milljónir tonna af síld í bili. Hæfileg friðun stækkar gönguna til Íslands. Hún getur orðið 10 milljón tonn af síld. P.S.: „Létta, leiðin, ljúfa“ er bókartitill á lífshlaupi Péturs Eggerz, sendiherra í íslensku utanríkisþjónustunni. Leiðin þar var ljúf og létt. Höfundur er hæstaréttarlögmaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hvað er í pakkanum? Hannes Lúðvíksson Skoðun Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson Skoðun Einstaklingurinn og fullveldið Signý Sigurðardóttir Skoðun Nýsköpunin sem hverfur inn í skýið Bogi Ragnarsson Skoðun Traust á lögmönnum er ekki einkamál lögmanna Vilbert Gústafsson Skoðun Heimilislæknar og reglugerðardrög Alma D. Möller Skoðun Þegar kaffið rennur upp á við í Undralandi íslenskrar orðræðu Sigurður Sigurðsson Skoðun Upplýsingar eru ekki ógn, þær eru forsenda Halldór Jörgen Olesen Skoðun Skilvirk núna en ekki ef við göngum í ESB Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Hvar er Ísland kynnt sem umsóknarríki? Erna Bjarnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hvað er í pakkanum? Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Nýsköpunin sem hverfur inn í skýið Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Þegar kaffið rennur upp á við í Undralandi íslenskrar orðræðu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson skrifar Skoðun Traust á lögmönnum er ekki einkamál lögmanna Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Upplýsingar eru ekki ógn, þær eru forsenda Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Heimilislæknar og reglugerðardrög Alma D. Möller skrifar Skoðun Einstaklingurinn og fullveldið Signý Sigurðardóttir skrifar Skoðun Skilvirk núna en ekki ef við göngum í ESB Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sterkari skólar fyrir öll börn Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Ég hef líka trú á Ögmundi Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun „Áður en við segjum já eða nei“ Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Þjóðarmorð? Finnur Th. Eiríksson skrifar Skoðun Breyttar áherslur í borgarskipulagi Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Hernaðarbrölt Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Það sem við gefum áfram Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Ríkið má ekki skorast undan Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Gjaldtaka hins opinbera þarf að vera fyrirsjáanleg Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin 250 ára: frelsi, stjórnarskrá og lærdómur fyrir Ísland Júlíus Valsson skrifar Skoðun Getum við gert enn betur? Já í ágúst Elvar Örn Arason skrifar Skoðun Húsnæðiskaupmáttur Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Hef trú á Arnari Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Börn eiga ekki að bíða meðan kerfið rífst Guðmundur Ármann skrifar Skoðun Júlí - mánuður fötlunarstolts Freyja Haraldsdóttir ,Jana Birta Björnsdóttir skrifar Skoðun Níutíu ár af sameiginlegu öryggi Ragnar Þór Ingólfsson skrifar Skoðun Var þetta sýndarsamráð? Sigurborg Kr. Hannesdóttir skrifar Skoðun Hvað vitum við í ágúst? Staðreyndir og möguleikar Íslands Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Töpum við fullveldinu ef við göngum í ESB? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Samningurinn sem allir hafa lesið skrifar Skoðun UT-mál Reykjavíkurborgar Haukur Arnþórsson skrifar Sjá meira