SPRON komið yfir hagnað síðasta árs 1. september 2007 05:30
SPRON var rekinn með 10,1 milljarðs króna hagnaði á fyrri hluta ársins sem er tæplega fjórfalt meiri hagnaður en á sama tíma í fyrra. Þetta er metafkoma en til samanburðar nam hagnaður sparisjóðsins, sem varð hlutafélag á dögunum, níu milljörðum króna allt árið 2006. Arðsemi eigin fjár var 63,8 prósent á ársgrundvelli. Hreinar rekstrartekjur SPRON voru tæpir fimmtán milljarðar króna á fyrstu sex mánuðum ársins sem er nærri þreföldun frá fyrra ári. Sem fyrr vógu fjárfestingar SPRON þungt á metunum. Tekjur af hlutabréfaeign og hlutdeild í afkomu hlutdeildarfélaga voru um 13,3 milljarðar. SPRON er stór hluthafi með beinum og óbeinum hætti í Existu en hlutabréf þess félags hækkuðu um 52 prósent á fyrri hluta ársins. Sparisjóðurinn er einnig stór hluthafi í Icebank sem hagnaðist ríflega á tímabilinu og þá skilaði dótturfélagið Frjálsi Fjárfestingarbankinn rúmum einum milljarði króna í hagnað. Hreinar vaxtatekjur voru um 1,1 milljarður og vekur athygli að þær drógust saman um þriðjung. Vaxtamunur sparisjóðsins var 1,1 prósent á móti 2,5 prósentum árið áður en hafa ber í huga að stór hluti af eignum er bundinn í eignum sem mynda annars konar tekjur en vaxtatekjur. Rekstrarkostnaður fór úr 1,8 milljörðum í 2,5 milljarða sem var um 41 prósents aukning. Launakostnaður, sem var um helmingur kostnaðar, jókst um tæp 38 prósent Kostnaðarhlutfall SPRON var ekki nema 16,7 prósent. Heildareignir fjármálafyrirtækisins voru komnar í 208,5 milljarða króna í lok júní og höfðu aukist um þrettán prósent á árinu. Eigið fé nam þá 35,9 milljörðum og hækkaði um 3,4 prósent. Eiginfjárhlutfall (CAD) var 13,6 prósent en eiginfjárþáttur A um 29 prósent.
Mest lesið Samherji gæti tvöfaldast Viðskipti innlent Hámark tvær vikur í heilsutengd áramótaheit með eiginkonunni Atvinnulíf Gert að afhenda búslóðina eftir að hafa haldið henni í gíslingu Neytendur Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Ný tækni, ný kynslóð, ný viðhorf: Yngsti sölumaðurinn eins árs Atvinnulíf Komst ekki á toppinn og bótakröfunni hafnað Neytendur Von, hugrekki og virðing við lok lífs Skoðun Fær íshellaferð ekki endurgreidda Neytendur Eldsneytisverð gæti lækkað um tugi króna á nýju ári Neytendur Skellir í vél á morgnana og nokkuð ánægð með sjálfa sig í gjafavali Atvinnulíf Fleiri fréttir Samherji gæti tvöfaldast Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Sjá meira