Skoðun

Hækkum skattleysismörkin

Tvö stór verkefni nýrrar ríkisstjórnar er að hækka skattleysismörk og afnema verðtryggingu. Skattleysismörkin

Alli þurfa að hafa tekjur sjálfum sér og sínum til framfærslu. Allt það sem við teljum vera nauðsyngt að hafa og geta gert kostar peninga. Markmið velferðarsamfélagsins er að þessara peninga eða tekna sé hægt að afla á venjulegum vinnudegi, þ.a.s. 40 stunda vinnuviku. Talið er að hver fullorðinn einstaklingur þurfi um 150.000 krónur nettó á mánuði til að lifa sómasamlegu lífi. Ef ríkistjórnin tekur hluta af þessum aur, 150.000 krónum til sín í formi tekjuskatts þá gefur það augaleið að við þurfum að vinna enn lengri vinnudag til að hafa þessar lágmarks tekjur (framfærslutekjur).

Frjálslyndi flokkurinn hefur barist fyrir því frá stofnun hans að skattleysismörk væru hækkuð, -að persónuafsláttur væri hækkaður það mikið að fólk sem hefði lágmarks framfærslutekjur fyrir 40 stunda vinnuviku þyrfti ekki að borga tekjuskatt til ríkisins.

Kröfur Frjálslynda flokksins í þessum kosningum eru þær að persónuafsláttur verði þegar í stað hækkaður í 112 þús. krónur og upp í 150 þús. kjörtímabilinu. Þannig getum við hrundið þeirri áþján fjölskyldna sem margar hverjar eru fastar í klóm langra vinnudaga og vinnuþrælkunar.

Verðtryggingin.

Eitthvert undarlegasta fyrirbrigði samtímans í fjármálaheiminum er verðtrygging á bankalánum. Verðtryggingin er sögð nauðsynleg til að tryggja stöðugleika, en í raun er hún fyrst og fremst tæki til að tryggja fé bankann, -verja bankana hugsanlegum áföllum. Á sama tíma hafa lántakendur, heimilin í landinu og húsbyggjendur enga tryggingu fyrir því að þeirra tekjur hækki í takt við hækkun höfuðstóls lánanna sem verðtryggð eru hjá bönkunum.

Við í Frjálslynda flokknum teljum það óásættanlegt að utanaðkomandi aðstæður hafi áhrif á höfuðstól bankalána og viljum banna verðtryggingu nýrra lána, en alls konar verðbreytingar á voru og þjónustu út í hinum stóra heimi eru látin hafa áhrif á höfuðstól verðtryggðra bankalána. Ef verð á kaffi hækkar í Brasilíu, þá hækkar skuld þín við bankann. Það sjá allir fáránleikann í þessu.

Verðtryggingin átti að verja okkur fyrir verðbólgunni, en í staðinn viðheldur hún henni.

Enn eitt verkefni nýrrar ríkisstjórnar er koma því í kring að vextir lækki til samræmis við vexti í nágrannalöndunum, en til þess að það geti orðið þurfum við að breyta lögum um banka og lánastarfsemi og auka samkeppni á þessu sviði.

Höfundur er í 2. sæti á lista Frjálslynda flokksins í Reykjavík-suður.




Skoðun

Sjá meira


×