Krónan ofmetin gagnvart dollar 19. apríl 2007 06:15 Á fundir greiningardeildar. Ásgeir Jónsson forstöðumaður, Haraldur Yngvi Pétursson og Þóra Helgadóttir sérfræðingar greiningardeildar Kaupþings banka. MYND/Valli
Hátt gengi krónunnar skýrist fyrst og fremst af ofmati á gengi hennar gagnvart Bandaríkjadal. Raungengi gagnvart bandaríkjadal er nálægt sjö ára jafnvægisgildi. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu greiningardeildar Kaupþings banka. Á fundi greiningardeildarinnar í gærmorgun kynntu Þóra Helgadóttir og Ásdís Kristjánsdóttir, sérfræðingar deildarinnar, úttekt sína á stöðu krónunnar. Þar kemur fram að viðskiptahalli verði viðvarandi næstu árin í ljósi vaxandi ójafnvægis þáttatekna, en undir þær falla laun, vextir og arðgreiðslur. „Slíkt ójafnvægi skýrist fyrst og fremst af erlendri skuldasöfnun íslenskra útrásarfyrirtækja. Hins vegar má velta fyrir sér hvort slíkt ójafnvægi sé áhyggjuefni sér í lagi ef litið er til íslensku krónunnar. Hátt raungengi krónunnar nú um stundir skýrist fyrst og fremst af ofmati íslensku krónunnar gagnvart dollara. Raungengi krónu gagnvart evru er hins vegar í kringum jafnvægi,“ segir í ritinu. Haraldur Yngvi Pétursson, sérfræðingur greiningardeildar Kaupþings, fór yfir þróun og horfur í Kauphöllinni á morgunverðarfundi með fagfjárfestum í fyrradag. Hér hefur vöxturinn verið mestur, 20,7 prósent það sem af er árinu, en næst á eftir kæmi sænska kauphöllin með 10,1 prósents vöxt. „Enn er töluvert rúm fyrir hækkun á úrvalsvísitölunni og teljum við að hún endi kringum 8.500 stig í lok árs,“ segir hann. Í fyrri spá bankans var gert ráð fyrir að vísitalan færi í 8.000 stig. Hann segir þó ekki ólíklegt að einhverjar sveiflur kunni að verða. Góð uppgjör fjármálafyrirtækja og ytri vöxtur er það sem greiningardeildin segir að styðji við hækkun markaðarins. Þannig spáir greiningardeildin 75 prósenta hagnaðaraukningu á fyrsta ársfjórðungi þessa árs frá sama tímabili í fyrra hjá þeim félögum sem afkomuspár bankans ná til og að hagnaður fjármálafyrirtækja aukist um 65 prósent. Greiningardeildin er með þrjú félög í yfirvogun í umfjöllun sinni, en það eru Mosaic Fashions, Landsbankinn og Bakkavör. Spáð er 11 og 10 prósenta hækkun á gengi bréfa Bakkavarar og Landsbankans til tólf mánaða og 20,5 prósenta hækkun á gengi Mosaic Fashions. Þar spili inn í jákvæðar fréttir af breskum smásölumarkaði sem greiningardeildin telur að komi félaginu mjög til góða.
Mest lesið Elín Hirst stofnar fyrirtæki Viðskipti innlent Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Samstarf Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Viðskipti innlent „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Viðskipti innlent Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf Nýr Nissan LEAF er á leiðinni Samstarf Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Viðskipti innlent Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Viðskipti innlent Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn Viðskipti innlent Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Viðskipti innlent Fleiri fréttir Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Sjá meira