Sjómanns af strönduðum báti leitað í Vopnafirði 12. apríl 2007 00:27
Nú stendur yfir leit að sjómanni sem saknað er eftir að bátur hans fannst mannlaus í stórgrýti í fjöru austan megin í Vopnafirði. Björgunarsveitarmenn Slysavarnafélagsins Landsbjargar á Austurlandi eru að byrja að ganga fjörur en myrkur og strekkingsvindur torvelda nokkuð leitarstarf. Þyrla Landhelgisgæslunnar og varðskip eru á leið á strandstað. Fyrr í kvöld var hafin eftirgrennslan eftir bátnum að beiðni Vaktstöðvar siglinga þar sem ekki náðist fjarskiptasamband við hann. Björgunarskip Slysavarnafélagsins Landsbjargar, Sveinbjörn Sveinsson frá Vopnafirði, var kallað út og fann það bátinn klukkan 23:15, mitt á milli Kattárvíkur og Fles út af Kollamúla í Vopnafirði. Léttabát af skipinu gekk nokkuð erfiðlega að komast að bátnum en nokkru eftir miðnætti kom í ljós að strandaði báturinn var mannlaus. Tíu björgunarsveitir hafa verið boðaðar út til leitar á landi og sjó og verða björgunarskip, vélsleðar og göngufólk notað við hana. Gert var ráð fyrir að þyrlan yrði komin á staðinn um klukkan 2:30 í nótt, og að fullur þungi yrði settur í leitina við birtingu.
Innlent Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Nóg sé komið af Trump Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Fleiri fréttir Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í innviði „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Skoðar að hækka framlag til Loftbrúarinnar Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins „Fylgir því mikil skömm að eiga foreldri í fangelsi“ Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm Sjá meira