Verðbólgan eykst Óli Kristján Ármannsson skrifar 13. nóvember 2007 06:00 Á bensínstöð Verð á 95 oktana bensíni hækkaði að jafnaði um 2,09 prósent milli október og nóvember samkvæmt mælingu Hagstofunnar. Fréttablaðið/Valli
Verðbólga mælist 5,2 prósent miðað við síðustu tólf mánuði. Samkvæmt mælingu Hagstofunnar hækkaði vísitala neysluverðs um 0,65 prósent milli október og nóvember. Sé húsnæðisliðurinn tekinn út nemur verðbólgan undanfarið ár hins vegar 1,9 prósentum. Verðbólga er heldur meiri en greiningardeildir banka höfðu gert ráð fyrir og segir í sérefni greiningardeildar Kaupþings að líkur hafi heldur aukist á að Seðlabanki Íslands hækki stýrivexti enn frekar á aukavaxtaákvörðunardegi 20. desember næstkomandi. Aukin verðbólga er að mestu rakin til hækkunar á verði íbúðarhúsnæðis og á verði eldsneytis. Litið fram hjá skattalækkun fyrr á árinu nemur ársverðbólga 7,0 prósentum samkvæmt fastskattavísitölu. „Við eigum von á að ársverðbólgan aukist enn frekar í desember og muni vera yfir 5 prósentum á fyrstu mánuðum næsta árs,“ segir í umfjöllun greiningardeildar Glitnis. Fram kemur að húsnæðisverð hafi hækkað um 1,5 prósent milli mánaða, þar af íbúðarhúsnæði á landsbyggðinni mest um 2,53 prósent og eignir í fjölbýli á höfuðborgarsvæðinu 1,37 prósent. Greiningardeild Glitnis telur að hækkun vaxta húsnæðislána komi til með að ná að slá á húsnæðismarkaðinn. „Sú vaxtahækkun á íbúðarhúsnæðislánum sem þegar hefur komið til er á lánum viðskiptabankanna en vextir á erlendum lánum hafa einnig hækkað töluvert vegna aukins áhættuálags vaxta á heimsvísu og erfiðleika á erlendum fjármálamörkuðum.“
Mest lesið Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Viðskipti erlent Verslunin Air lokar í Kringlunni Viðskipti innlent Rafsendibílar orðnir raunhæfur kostur fyrir íslensk fyrirtæki Samstarf Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Land Rover veisla á laugardaginn Samstarf Fleiri fréttir Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Sjá meira