Hlutabréf Promens verða skráð í evrum Óli Kristján Ármannsson skrifar 10. október 2007 04:45 Ragnhildur Geirsdóttir, forstjóri Promens, kynnir kaupin á norsku iðnsamstæðunni Polimoon Group á blaðamannafundi í byrjun þessa árs. Markaðurinn/Heiða
Hlutabréf iðnfyrirtækisins Promens, dótturfélags Atorku, verða skráð í evrum, að sögn Ragnhildar Geirsdóttur, forstjóra fyrirtækisins. Stefnt er að skráningu í OMX Kauphöll Íslands. „Langstærstur hluti af okkar rekstri er í evrum og á evrusvæði. Við stefnum því að skráningu í evrum og vonandi verða ekki á því vandkvæði á næsta ári,“ segir Ragnhildur. Hún segir skipta miklu gagnvart bæði erlendum fjárfestum og stjórnendum sem hlut eiga í félaginu að bréfin verði skráð í evrum. „Það ræður náttúrlega enginn yfir gengi krónunnar og tenging við hana myndi verða til vandkvæða.“ Af um 6.000 starfsmönnum Promens og 64 verksmiðjum sem eru í 22 löndum starfa innan við hundrað manns hér á landi í tveimur verksmiðjum. Annars vegar er það á Dalvík, þar sem rætur Promens liggja í Sæplasti, og í frauðplastverksmiðju Tempru í Hafnarfirði. Promens er með stærstu fyrirtækjum Evrópu í plastiðnaði. Í sumar kynnti Promens nýtt skipurit þar sem öll félögin innan samstæðunnar eru rekin saman. Frá og með 1. nóvember næstkomandi verða svo félögin öll rekin undir nafni Promens. Félagið hefur stækkað gífurlega á einu ári, en stærsta stökkið var tekið í desember í fyrra með kaupunum á norska félaginu Polimoon Group sem skráð var í kauphöllina í Ósló, en Polimoon var fjórum sinnum stærra félag en Promens. Félagið var svo í kjölfarið skráð úr kauphöllinni. Á þessu ári hefur Promens svo bætt við sig þremur félögum sem öll sérhæfa sig í snyrtivöruumbúðum; strax í byrjun árs í Rússlandi, í félagi sem sérhæfir sig í snyrtivöruumbúðum, um mitt ár var svo keypt félag í Frakklandi og nú síðast var yfirtekin framleiðslueining spænska fyrirtækisins STE. Ragnhildur segir stefnt að áframhaldandi ytri vexti félagsins. „Við horfum til smærri og millistórra fyrirtækja í þeim efnum,“ segir hún, en kveður um leið ekki tímabært að upplýsa frekar um gang þeirra mála. Ragnhildur segir tækifærin þó ekki vanta því í plastiðnaði séu mörg smærri fyrirtæki og tækifærin því nánast óþrjótandi. „En við kaupum náttúrlega ekki hvaða félag sem er, þau verða að passa inn í áætlanir okkar.“ Ragnhildur segist ekki reikna með að fyrirætlanir um frekari vöxt Promens trufli skráningu í Kauphöllina.
Mest lesið Mátti rifta kaupum á bíl sem bilaði þremur dögum eftir kaup Neytendur Tollasamkomulag Bandaríkjanna og Kanada út um þúfur Viðskipti erlent Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Viðskipti innlent Landsbankinn hækkar líka vexti Viðskipti innlent Geti munað allt að tvö þúsund krónum á matarkörfunni eftir verslunum Neytendur Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Viðskipti innlent JYSK opnar nýtt og glæsilegt vöruhús í Mosfellsbæ Samstarf Jón Þór fer til Samherja Viðskipti innlent Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Viðskipti innlent „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Viðskipti innlent Fleiri fréttir Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu „Það eru engin fórnarlömb hér“ Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Hækka stýrivexti Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Árni skattakóngur annað árið í röð Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda María Klara til Athygli Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Sjá meira