FL Group þrýstir á breytingar hjá AMR Óli Kristján Ármannsson skrifar 28. september 2007 06:00 Biðröð hjá American Airlines í Flórída í Bandaríkjunum American Airlines er dótturfélag AMR, en þar er FL Group meðal langstærstu hluthafa með 9,14 prósenta hlut. Fréttablaðið/AFP
Hlutur FL Group í AMR er kominn í 9,14 prósent. Í tilkynningu frá félaginu er þrýst á um breytingar til að auka virði AMR. Gengi bréfa AMR hefur lækkað um 47 prósent frá því í janúar. FL Group kennir meðal annars um slælegri upplýsingagjöf. FL Group hefur sent stjórn flugfélagsins AMR í Bandaríkjunum bréf og óskað eftir því að hún leiti nýrra leiða til að auka virði félagsins. FL Group er meðal þriggja stærstu hluthafa AMR, sem er einnig er móðurfélag American Airlines, og á í félaginu 9,14 prósenta hlut. Í bréfi FL Group til stjórnar AMR er raunar tiltekinn 8,3 prósenta hlutur, en í gegn gengu kaup eftir sendingu þess. Gengi bréfa AMR hefur lækkað um 47 prósent frá því um miðjan janúar og kostað hluthafa nálægt fimm milljörðum dala, segir FL Group. Tillögur félagsins fela meðal annars í sér að Vildarklúbbur AMR, AAdvantage, verði aðskilinn frá rekstri félagsins, sem og viðhalds- og viðgerðarþjónusta. Hannes Smárason, forstjóri FL Group, bendir á að FL hafi umfangsmikla reynslu af rekstri flugfélaga og félagið telji að stjórn AMR beri að leita nýrra leiða til að auka verðmæti félagsins. Með því að aðskilja Vildarklúbb félagsins sé hægt að minnka skuldir og auka virði AMR. Virðisaukning með þeirri breytingu einni er metin á fjóra milljarða dala, eða tæplega 250 milljarða króna. FL Group telur sig ekki hafa fengið miklar undirtektir við fyrri ábendingar til stjórnar og kaus því að gera þær opinberar í gær. Standa vonir félagsins til þess að þrýstingur kunni að aukast frá öðrum hluthöfum um breytingar í framhaldinu. Halldór Kristmannsson, framkvæmdastjóri samskiptasviðs FL Group, segir félagið sjá tækifæri til framtíðar í rekstri AMR, sem hafi verið ágætur, þótt hann hafi ekki náð væntingum markaðarins. „Við teljum að um sé að kenna upplýsingagjöf félagsins og ekki sé nógu gegnsætt hvaða virði leynist innan þess. Gegnsæi og upplýsingagjöf þarf að aukast til að stuðla að eðlilegri verðmyndun á markaði. Við vonumst til að eiga góð samskipti við stjórn félagsins í framhaldinu en ljóst að við viljum sjá skjót viðbrögð við tillögum okkar,“ segir Halldór. Ekki þykir hafa blásið gæfulega fyrir fjárfestingar FL Group núna á þriðja ársfjórðungi. Slegið hefur verið á að gengistap FL Group sé nálægt 20 milljörðum. Þannig hafði í gær gengi bréfa Commerzbank lækkað um 19,8 prósent frá lokum annars ársfjórðungs. Þá var virði 3,24 prósenta eignarhlutar FL Group 63,8 milljarðar króna, en hefur síðan lækkað um rúma 12,6 milljarða króna. FL Group hefur hins vegar litið til tækifæra í lækkandi gengi og aukið við hlut sinn í bankanum. Í vikunni var frá því greint að félagið væri orðið næststærsti hluthafi bankans með 4,25 prósenta hlut. Miðað við gengi AMR í gær nemur svo gengistap af hlut FL frá lokum fyrri ársfjórðungs af þeirri eign um fimm milljörðum króna, Finnair hefur lækkað um sem nemur 10 prósentum og gengistap þar nálægt 2,4 milljörðum, og af eign í Glitni um tveir milljarðar. Ef svo er tekinn inn í dæmið fjármagns- og rekstrarkostnaður á borð við þann sem var á öðrum ársfjórðungi eykst kostnaður um rúma fjóra milljarða. Á móti kemur svo hagnaður af Inspired Gaming Group sem hækkað hefur um rúm 20 prósent, en var í hálfsársuppgjöri metið á um 2,3 milljarða króna. Þá er talið að töluverð dulin verðmæti liggi í eign FL í hollenska drykkjarvörufyrirtækinu Refresco.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Íslenskt sund í New York Viðskipti erlent Segja Heinemann brjóta gegn stjórnarskrárvörðum rétti Íslendinga Viðskipti innlent Vikan sem vex og vex: „Magatilfinningin er jafnvel mikilvægust“ Atvinnulíf Spá óbreyttum stýrivöxtum Viðskipti innlent Útboðið fari vel af stað og allar líkur á að magnið aukist Viðskipti innlent Útboðið á ríkishlutum í Íslandsbanka hafið Viðskipti innlent Varar við framtíðarreikningum í nafni barnsins Neytendur Verslun Nettó í Glæsibæ opnar líklega á morgun Viðskipti innlent Áskriftir borist í 20 prósenta hlut í Íslandsbanka Viðskipti innlent Apple skoðar að stýra snjalltækjum með hugsunum Viðskipti erlent Fleiri fréttir Segja Heinemann brjóta gegn stjórnarskrárvörðum rétti Íslendinga Spá óbreyttum stýrivöxtum Útboðið fari vel af stað og allar líkur á að magnið aukist Jákvætt að almenningur njóti forgangs við söluna Áskriftir borist í 20 prósenta hlut í Íslandsbanka Verslun Nettó í Glæsibæ opnar líklega á morgun Dregur úr tapi og notendum fjölgar um 66 prósent Vonar að almenningur nýti forganginn í bankasölunni Ráðinn forstöðumaður Öryggislausna OK Útboðið á ríkishlutum í Íslandsbanka hafið Síðasti dropinn á sögulegri stöð Ráðuneytið ræður fjögur íslensk fjármálafyrirtæki vegna sölunnar á Íslandsbanka Sjóvá fundaði með PPP en afþakkaði þjónustu Svandís tekur við Fastus lausnum Ráðinn framkvæmdastjóri Starbucks á Íslandi Tæknin geti komið í veg fyrir þjófnað Hafa þegar skilað nettóbindingu en tafir á stærri föngunarstöð „Umbreyting í átt að velsældarhagkerfi krefst hugrekkis“ Salan á Íslandsbanka: Samið við fjóra erlenda söluaðila Til IDS á Íslandi frá Íslenskri erfðagreiningu Hagnaðist um rúma fimm milljarða á fyrsta ársfjórðungi Hundrað og fimmtíu manns unnu að opnuninni Samþykktu að bæta við leið fyrir stóra fjárfesta í sölu Íslandsbanka Gríðarlegt áhyggjuefni fyrir Norðurþing Ingunn ráðin framkvæmdastjóri Auðnu Rannsakendur og nemendur við HA fá aðgang að sérhæfðu gervigreindartóli Tæplega átta milljarða króna viðsnúningur milli ára Rekstrarstöðvun sé yfirvofandi á Bakka Til Samtaka atvinnulífsins eftir mánuð á auglýsingastofu Margrét hættir sem forstjóri Nova Sjá meira