Evruhlutabréf eru rökrétt skref 25. janúar 2007 05:00 Friðrik Jóhannsson. Auk Friðriks fluttu erindi á fundi FVH Ingólfur Bender forstöðumaður greiningardeildar Glitnis og Jón Þór Sturluson hagfræðidoktor og forstöðumaður M.Sc. náms HR. MYND/GVA
Líklegt má telja að tillaga um að færa allt hlutafé Straums-Burðaráss Fjárfestingabanka úr krónum yfir í evrur verðu lögð fyrir hluthafa á aðalfundi bankans sem haldinn verður í febrúarlok eða byrjun mars. Á morgunverðarfundi Félags Viðskiptafræðinga og hagfræðinga um gjaldmiðilsmál á Hóteli Nordica í gær kom fram í máli Friðriks Jóhannssonar, forstjóra Straums-Burðaráss, að evruskráning hlutabréfa kynni að vera eðlilegt skref í framhaldi af því að bankinn hefur fært eigið fé sitt yfir í evrur og hætt að gera upp í krónum. Breyting í þessa veru segir Friðrik að myndi styrkja bankann á alþjóðlegum fjármálamörkuðum, enda séu lánveitendur þar vanir evrum en ekki krónum og telur að þeir kunni að horfa á krónuna sem áhættuþátt. „Það er ljóst að þetta eykur mjög líkurnar á því að við getum laðað að erlenda fjárfesta auk þess sem það eykur möguleika á sameiningum við erlend fyrirtæki að vera í evrum.“ Vísar hann meðal annars til þess möguleika að greiða fyrir smærri fyrirtæki með hlutabréfum í Straumi-Burðarási. „Með því tengjum við svo vel hagsmuni okkar og hagsmuni þeirra sem við erum að fá til liðs við okkur.“ Friðrik áréttar hins vegar að ákvörðunin um að fara þá leið að færa hlutabréf bankans í evrur sé í höndum hluthafa bankans og verði ekki tekin nema á fundi þeirra. „Og ég reikna með því að þetta verði borið upp á aðalfundi.“ Friðrik segist telja að í breytingunni felist einnig ávinningur fyrir smærri hluthafa líka jafnvel þótt viðskiptakostnaður geti fylgt því að skipta í evrur, enda muni breytingin efla bankann, auk þess sem hluthafar geti fjármagnað bréf sín í evrum og losnað þar með við gjaldeyrisáhættu vegna skammtímasveiflna.
Mest lesið Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Viðskipti innlent Gengi Oculis hrynur Viðskipti innlent Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Viðskipti innlent Þegar átta stunda vinnudagur og fimm daga vinnuvika þóttu stórhættulegar hugmyndir Atvinnulíf Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Viðskipti innlent Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Viðskipti innlent Fimm frumkvöðlar: Afarnir, pabbarnir og nú 10 ára sonurinn Atvinnulíf Ný flaga færir gervigreindina af skýinu Viðskipti erlent Fleiri fréttir Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Sjá meira