Þingið áhrifalaust varðandi gengismál 24. janúar 2007 06:15 Vilhjálmur Bjarnason aðjúnkt. Vilhjálmur kynnti helstu niðurstöður úr grein í vinnslu í Odda í gær. MYND/Rósa
Margar stefnumarkandi ákvarðanir í peningamálum þjóðarinnar hafa verið teknar án frumkvæðis eða skilnings stjórnmálamanna, að sögn Vilhjálms Bjarnasonar aðjúnkts við viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands. Vilhjálmur velti upp spurningunni um hvort svo kynni einnig að fara í tengslum við umræðu um kosti og galla evrunnar sem gjaldmiðils hér í stað krónu í erindinu Þrautir þingsins, sem hann flutti í hádeginu í gær í málstofu viðskipta- og hagfræðideildar. Hann segist þó ekki ætla að spá neinu um hver þróunin verði, en segir merkilegt að sjá hvernig þingið hafi í gegnum tíðina yfirleitt staðið frammi fyrir orðnum hlutum þegar kæmi að ákvörðunum um gengi, verðtryggingu og vexti. „Spurningin er kannski sú hvort fyrirtækin velji sér mynt hvert og eitt eins og heimild er fyrir í lögum um ársreikninga þar sem þau geti ekki búið við það að sveiflur í gengi krónunnar séu 10 til 15 prósent innan árs.“ Vilhjálmur bendir á að fyrirtæki færi mörg hver þegar bókhald sitt í erlendri mynt, að þrír fjórðu útlána bankanna séu það líka um leið og mikið af fjármálastjórn fyrirtækja fari í gjaldmiðlastýringu. - óká
Mest lesið Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Viðskipti innlent Isavia má rukka í rennuna eftir allt saman Neytendur Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Viðskipti innlent Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Viðskipti innlent Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Viðskipti innlent Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Viðskipti innlent Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Viðskipti innlent Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Viðskipti innlent Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Viðskipti innlent Þakefni sem standast rokið, rigninguna og tímans tönn Samstarf Fleiri fréttir Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Arion banki hækkar vexti Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Sigrún ráðin aðalbókari Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Sjá meira