Evra sækir á dal í bókhaldi fyrirtækja 12. janúar 2007 06:30 Guðmundur Guðbjarnarson Guðmundur, sem er forstöðumaður ársreikningaskrár hjá Ríkisskattstjóra, segir mat lagt á hvort umsóknir félaga um að færa bókhald sitt í erlendum gjaldmiðli samrýmist skilyrði í lögum um ársreikninga. MYND/Anton
Fyrirtæki sem gera vilja upp í erlendri mynt þurfa að sækja um það til ársreikningaskrár. Frá árinu 2002 hafa 167 fyrirtæki fengið slíka heimild, tæp 60 prósent í Bandaríkjadölum og tæpur þriðjungur í evrum. Fyrir ári var tæpur fjórðungur í evrum. Um áramót höfðu 167 fyrirtæki fengið heimild til að færa bókhald sitt í erlendri mynt. Í lögum um ársreikninga er kveðið á um hvaða skilmála fyrirtæki þurfa að uppfylla til að fá heimild til að breyta uppgjöri sínu á þann veg og hvenær umsókn um slíkt þarf að berast. „Umsókn um heimild til færslu bókhalds og samningar ársreiknings í erlendum gjaldmiðli skal berast ársreikningaskrá tveimur mánuðum fyrir upphaf viðkomandi reikningsárs,“ segir þar meðal annars. Guðmundur Guðbjarnarson, forstöðumaður ársreikningaskrár hjá Ríkisskattstjóra, segir að heimild sé veitt til að færa uppgjörið í erlenda mynt uppfylli félög skilmála laganna. „Tímamörkin eru svo sett til þess að tryggja að ekki sé um neina skyndiákvörðun að ræða hjá fyrirtækjunum, heldur sé þetta gert að vel athuguðu máli.“ Til dæmis nægir félögum að sýna fram á að þau séu með meginstarfsemi sína erlendis eða séu hluti erlendrar samstæðu þar sem starfrækslugjaldmiðillinn er annar en króna. Þá geta einnig fengið slíka heimild félög sem eiga erlend dótturfélög, eða hafa meginstarfsemi hér en eru með verulegan hluta tekna sinna erlendis frá í öðrum gjaldmiðli en krónum. Eins geta fengið heimild til að gera upp í erlendri mynt félög sem hafa verulegan hluta fjárfestinga sinna í erlendum fjárfestingarvörum og skuldir þeim tengdar í erlendum gjaldmiðlum. „Svo er spurningin bara hvernig fyrirtækin leggja þetta fram í sinni umsókn, hvort þau uppfylli þessi skilyrði,“ segir Guðmundur, en umsóknum er hafnað geri þau það ekki. Guðmundur segir að af þeim félögum sem fengið hafa heimild geri flest, 98 eða 58,7 prósent, upp í Bandaríkjadal. Þar á eftir kemur 51 fyrirtæki sem gerir upp í evru, eða 30,5 prósent. Þetta er nokkur breyting frá árslokum 2005 þegar 65 prósent fyrirtækja gerðu upp í Bandaríkjadal og 24 prósent í evrum. Í þriðja sæti um algengustu erlendu uppgjörsmyntina er svo enskt pund, en níu fyrirtæki gera upp í því, eða 5,3 prósent. Meðal annarra gjaldmiðla sem félög gera upp í eru norsk og dönsk króna og japanskt jen. Þá segir Guðmundur að þó nokkur einkahlutafélög hafi fengið heimild til að færa hlutafé í erlendri mynt, en um það gildi nokkuð önnur lögmál en um skráð félög, þar sem hlutaféð sé ekki gefið út og gangi ekki kaupum og sölum með hefðbundnum hætti.
Mest lesið Arion banki og Kvika blása af samrunann Viðskipti innlent Eru karlmenn í jakkafötum á undanhaldi? Atvinnulíf Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Viðskipti innlent Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Viðskipti innlent „Bílastæðið er fyrsta upplifun viðskiptavinarins“ Samstarf Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Viðskipti erlent Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Viðskipti innlent Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Viðskipti innlent Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Viðskipti innlent Umsóknum synjað og kurr í greininni Viðskipti innlent Fleiri fréttir Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Nýr forstjóri Deloitte fundinn Fyrirkomulagið beinlínis til að komast fram hjá lögum Kynna aðgerðir gegn verðbólgu á morgun Origo kaupir Maven Áfrýja og segja dóminn ekki skýra viðvarandi óvissu Stuggað við einokun á hljóðbókamarkaði „Það sér hver heilvita maður að það er algjör tímaskekkja“ Forvarnarsamtök fagna en vínsalar láta dóminn ekki stoppa sig Ein belja varð Vilhjálmi í Smáríkinu að falli Krefja Björgólf og Birgi um hundruð milljóna vegna njósnanna Þrettán prósent hækkun á bensíni að mestu vegna Íransstríðs Taka loks við reiðufé tuttugu mánuðum frá opnun Ballið búið hjá Húrra Reykjavík Hvað á að gera við fermingarpeningana? Sjá meira