Stefnt að skráningu Promens innan tveggja ára 10. janúar 2007 06:45 kaupin á Polimoon kynnt. Ragnhildur Geirsdóttir, forstjóri Promens, kynnti á mánudag kaupin á Polimoon. MYND/Heiða
Hólmfríður Helga Sigurðardóttir skrifar Stefnt er á að skráningu Promens innan tveggja ára. Ekki fæst upp gefið til hvaða kauphalla er helst horft til þess. Bækur félagsins verður jafnframt eftirleiðis gerðar upp í evrum. Þessar breytingar koma í kjölfar kaupa Promens á norska fyrirtækinu Polimoon sem gengu í gegn um áramótin. Atorka, sem á ríflega 82 prósent hlutafjár í félaginu, hyggst eftir sem áður spila lykilhlutverk í eignarhaldi á félaginu. Fyrir yfirtökuna var Polimoon skráð í Kauphöllini í Ósló en nú er unnið að afskráningu þess. Það má segja að Promens hafi tekið stakkaskiptum frá því í upphafi árs 2005 þegar félagið var með tuttugu milljónir evra í veltu. Í lok árs 2006, eftir umrædd kaup á Polimoon, var veltan komin í 710 milljónum evra á ársgrundvelli. Promens rekur nú sextíu verksmiðjur í tuttugu löndum, 5.400 starfsmenn starfa hjá félaginu og 160 þúsund tonn af plasti eru framleidd árlega. Einungis tvö prósent af umsvifum Promens sér nú stað á Íslandi og félagið er orðið leiðandi í plastiðnaði á heimsvísu. Ragnhildur Geirsdóttir, forstjóri Promens, og Arne Vraalsen, forstjóri Polimoon, kynntu á mánudag hugmyndina að baki kaupunum. Í máli Ragnhildar kom fram stjórnendur Promens sjái mikla möguleika á frekari vexti, bæði á núverandi mörkuðum, í Asíu og Austur-Evrópu. Promens var fyrir kaupin sérhæft í hverfissteypu en Polimoon er hins vegar sérhæft í framleiðslu á ýmsum tegundum umbúða, auk þess að framleiða íhluti fyrir bíla- og rafeindaiðnað. „Við vorum búin að horfa á Polimoon í nokkurn tíma og sáum það sem áhugaverðan kost sem félli vel inn í okkar stefnu. Við sjáum þetta sem gullið tækifæri til að fara inn í aðra tækni en hverfissteypuna til að geta haldið áfram að vaxa og taka stærri skref. Félagið er með sterka stöðu í Evrópu og við sjáum fram á mjög áhugaverð tækifæri til að vaxa saman í framtíðinni.“ Verðið sem Promens greiddi fyrir Polimoon var 35 norskar krónur á hlut, sem samsvarar um 165 milljónum evra. Kaupin voru fjármögnuð með eigin fé og breytanlegum lánum sem eru sölutryggð af Atorku og Landsbanka Íslands, auk lánsfjármögnunar frá norska bankanum DnB NOR.
Mest lesið Stundum þarf einfaldlega að segja: „Afsakaðu þetta“ Atvinnulíf Arion banki og Kvika blása af samrunann Viðskipti innlent Eru karlmenn í jakkafötum á undanhaldi? Atvinnulíf Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Viðskipti innlent Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Viðskipti innlent Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Viðskipti erlent Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Viðskipti innlent Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Viðskipti innlent „Bílastæðið er fyrsta upplifun viðskiptavinarins“ Samstarf Umsóknum synjað og kurr í greininni Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Nýr forstjóri Deloitte fundinn Fyrirkomulagið beinlínis til að komast fram hjá lögum Kynna aðgerðir gegn verðbólgu á morgun Origo kaupir Maven Áfrýja og segja dóminn ekki skýra viðvarandi óvissu Stuggað við einokun á hljóðbókamarkaði „Það sér hver heilvita maður að það er algjör tímaskekkja“ Forvarnarsamtök fagna en vínsalar láta dóminn ekki stoppa sig Ein belja varð Vilhjálmi í Smáríkinu að falli Krefja Björgólf og Birgi um hundruð milljóna vegna njósnanna Þrettán prósent hækkun á bensíni að mestu vegna Íransstríðs Taka loks við reiðufé tuttugu mánuðum frá opnun Ballið búið hjá Húrra Reykjavík Sjá meira