Ráðlagt að senda ekki frá sér afkomuviðvörun 10. janúar 2007 06:00 Tískusýning á vegum Mosaic Fashions sem fram fór sumarið 2005 Stjórnendur Mosaic ákváðu í samráði við ráðgjafa að senda ekki frá sér afkomuviðvörun.
Eggert Þór Aðalsteinsson skrifar Afkoma tískuverslanakeðjunnar Mosaic Fashions var langt undir væntingum greiningardeilda bankanna á þriðja ársfjórðungi. Mosaic skilaði 1,4 milljóna punda tapi (195 milljónum króna) á tímabilinu en til samanburðar gerði meðaltalsspá bankanna út frá upphaflegum spám ráð fyrir að hagnaður félagins yrði 7,8 milljónir punda eða 1,1 milljarður króna. Greiningardeild Kaupþings telur að full ástæða hefði verið fyrir félagið að senda frá sér afkomuviðvörun til Kauphallarinnar. Bréf í Mosaic lækkuðu um nítján prósent á síðasta ári, þar af um þrettán prósent á fjórða ársfjórðungi og um 4,4 prósent á síðasta viðskiptadeginum 2006. Richard Glanville, fjármálastjóri Mosaic, sagði í samtali við Markaðinn að ekki hefði þótt ástæða til að gefa út afkomuviðvörun að fenginni ráðgjöf íslenskra ráðgjafa sem er Kaupþing. Bæði töldu menn að íslenski markaðurinn hefði verið vel upplýstur um erfiðar aðstæður í breskri smásölu út frá skrifum sérfræðinga og fjölmiðla og auk þess birti félagið reikninga sína fjórum sinnum á ári sem eigi að gefa góða mynd af stöðu félagsins á hverjum tíma. „Ég tel að í Bretlandi þar sem menn tilkynna um afkomu félaga með sex mánaða millibili verði þetta mun mikilvægara. Þar sem við greinum frá afkomu okkar á þriggja mánaða fresti voru skilyrði fyrir afkomuviðvörun ekki til staðar að okkar mati.“ Bent hefur verið á að mikil hlýindi í Bretlandi í haust hafi dregið úr sölu á fatnaði og þá á Oasis, stærsta vörulínan sem skapar 40-45 prósentum af heildartekjum félagsins, í vandræðum. Þótt vel gangi í erlendri útrás félagsins verða 80 prósent af tekjum Mosaic til á heimaslóðum. Guðmunda Ósk Kristjánsdóttir, hjá greiningu Landsbankans, vill ekki taka svo sterkt til orða að þörf hefði verið á afkomuviðvörun þótt uppgjörið hefði klárlega verið undir væntingum. Áætlanir stjórnenda Mosaic hafa verið að lækka jafnt og þétt yfir reikningsárið í kjölfar uppgjöra. „Það hefur verðmyndandi áhrif á Mosaic að þeir eru ekki að ná markmiðum sínum.“ Guðmunda Ósk segir að stjórnendur Mosaic sjái ekki fram á viðsnúning hjá stærstu vörulínu félagsins fyrr en um næstu páska. Smásöluverslun í Bretlandi er í lægð og bendir hún á að breskir smásalar hafi verið að greina frá dræmum sölutölum í aðdraganda jólanna. Nóvembersalan gekk illa hjá Mosaic í Bretlandi en samkvæmt forsvarsmönnum Mosaic var viðsnúningur í kringum jólasöluna sem Glanville staðfestir. Glanville segir ennfremur að janúar hafi farið vel af stað hjá keðjunni. „Eftir langt tímabil af niðurstöðum sem hafa verið undir væntingum erum við bjartsýnir á framhaldið. En því má ekki gleyma að hlutirnir breytast hratt á þremur til fjórum vikum hjá okkur í smásölunni.“
Mest lesið Mango opnar í Kringlunni Viðskipti innlent Thule lækkar í prósentu Neytendur Má gefa börnunum sínum peninga? Viðskipti innlent Á bak við stórar framkvæmdir eru stórar vélar Samstarf Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar Viðskipti innlent Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Viðskipti innlent Langflestir gera þessi mistök áður en þeir byrja að mála Samstarf „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Viðskipti innlent Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Viðskipti innlent Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Vélfagsmenn fóru bónleiðir til búðar frá Hæstarétti Setja 630 milljónir í að markaðssetja Ísland sem áfangastað Atvinnuleysi 5,6 prósent í maí Hagnaður Samherja nam um 8,5 milljörðum Stefna að uppbyggingu baðlóns og hótels í Grundarfirði Hafa samið um aukin raforkukaup á Blönduósi Ráðnir forstöðumenn hjá OK Sameining tveggja lífeyrissjóða samþykkt Gissur ráðinn framkvæmdastjóri OBHM Brynja til Fastus frá Samkaupum Efla ráðgjöf við nemendur HR um kjaramál „Hvað haldið þið að þetta kosti? Milljarða, milljarða, milljarða“ Sjá meira