Viðskipti erlent

Verðbólgan eykst vestra

Ben bernanke Aukin verðbólga í Bandaríkjunum eykur líkurnar á að seðlabankastjórinn Bernanke hækki stýrivexti.
Ben bernanke Aukin verðbólga í Bandaríkjunum eykur líkurnar á að seðlabankastjórinn Bernanke hækki stýrivexti. mynd/afp

Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,4 prósent í Bandaríkjunum í síðasta mánuði. Þetta jafngildir 4,2 prósenta verðbólgu á ársgrundvelli.

Almennt var búist við þessari hækkun sem skrifast að mestu á reikning aukins eldsneytiskostnaðar og hækkunar á raforkuverði. Þá nemur hækkun á fasteignaverði í Bandaríkjunum um helmingi hækkunar á vísitölunni.

Hækkunin er sögð auka líkurnar umtalsvert á að Ben Bernanke, seðlabankastjóri Bandaríkjanna, hækki stýrivexti á næsta vaxtaákvörðunarfundi seðlabankans undir lok mánaðarins.-






Fleiri fréttir

Sjá meira


×