Aðgerðaleysi ráðherra gagnrýnt 10. apríl 2006 16:26
Stjórnarandstæðingar deildu hart á heilbrigðis- og fjármálaráðherra við upphaf þingfundar í dag. Þeir gagnrýndu ráðherrana fyrir aðgerða- og úrræðaleysi þegar kæmi að því að leysa stöðuna á hjúkrunarheimilum og óskuðu eftir því að forsætisráðherra hlutaðist til um málið. Þuríður Bachman, þingmaður Vinstri-grænna, hóf umræðuna og kallaði eftir lausnum á þeirri stöðu sem komin er upp á hjúkrunarheimilum. Hún sagði óásættanlegt að rekstur þeirra væri í uppnámi og kallaði eftir að kjör starfsfólks yrðu bætt. "Spjótin standa á fjármálaráðherra," sagði Þuríður og krafðist aðgerða. Hún sagði að heilbrigðisráðherra þyrfti einnig að koma að málinu. Upphaflega hafði Þuríður kallað eftir afstöðu forsætisráðherra þar sem fagráðherrar hefðu bent hvorir á aðra en forsætisráðherra tók ekki þátt í umræðunni. Siv Friðleifsdóttir heilbrigðisráðherra lýsti áhyggjum af stöðunni en benti á að fulltrúar starfsmanna og stjórnenda hjúkrunarheimila ætluðu að funda og að rétt væri að bíða niðurstöðu þess fundar. Undir þau orð tók fjármálaráðherra. Margir stjórnarandstæðingar tóku til máls og sögðu að vandann hefðu allir séð fyrir nema ef til vill stjórnvöld. Þeir bentu á að stjórnarandstæðingar hefðu varað við vandanum þegar unnið var að gerð fjárlaga þessa árs en að þá hefðu stjórnarliðar ekkert viljað gera.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Innlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Berserksgangur á gististað Innlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Innlent Fleiri fréttir Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Sjá meira