Glitnir spáir 1,8% verðbólgu 19. október 2006 16:13
Glitnir gerir ráð fyrir 1,8% verðbólgu yfir næsta ár í nýrri spá en hafði áður spáð 3,2% verðbólgu. Óvissan í spá Glitnis vegur þó töluvert meira til hækkunar fremur en til lækkunar, segir í Morgunkorni Greiningar bankans. Glitnir reiknar með að yrirhugaðar aðgerðir stjórnvalda til að lækka matvöruverð leiði til 2,7% lækkunar vísitölu neysluverðs, en telur þó líkur á að stjórnvöld hafi ofmetið áhrif fyrirhugaðra aðgerða og verðbólgan framundan sé því vanmetin. Í forsendum verðbólguspár Glitnis er einnig gert ráð fyrir nokkurri lækkun á íbúðaverði. Líkurnar á slíkri lækkun virðist þó fara minnkandi um þessar mundir í ljósi vilja stjórnvalda til að bjóða aftur 90% lán á vegum Íbúðalánasjóðs, miða lánshlutfall við kaupverð í stað brunabótamats og hækka hámarkslánið. Einnig virðist draga hægar úr þenslu í efnahagslífinu um þessar mundir en áður var talið og styður það við eftirspurnarhliðina á íbúðamarkaðinum, segir bankinn. Þá segir í Morgunkorni, að greiningardeildir bankanna hafa birt nýjar verðbólguspár á síðustu dögum í kjölfar þess að kynntar voru fyrirhugaðar aðgerðir ríkisstjórnarinnar. Spárnar hafi gert ráð fyrir 0% til 2,4% verðbólgu yfir næsta ár. Glitnir telur litlar líkur á að lægsta spáin gangi eftir en um leið þokkalegar líkur á að hæsta spáin gangi eftir og verðbólgan geti raunar hæglega orðið umtalsvert meiri en sú spá gefur til kynna. Stærsti óvissuþáttur í verðbólguspánni er sem fyrr gengisþróun krónunnar, en hún ræðst að stórum hluta af áhættufælni alþjóðlegra spákaupmanna, vaxtastiginu og þenslu í hagkerfinu, segir í Morgunkorni Glitnis.
Mest lesið Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör Viðskipti innlent Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Viðskipti innlent „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Viðskipti innlent Ungir frumkvöðlar byggðu allt frá grunni Samstarf Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Viðskipti innlent Isavia má rukka í rennuna eftir allt saman Neytendur Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Viðskipti innlent Fjölmenntu á vorviðburð Málningar og Slippfélagsins Samstarf Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Viðskipti innlent Þakefni sem standast rokið, rigninguna og tímans tönn Samstarf Fleiri fréttir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Sjá meira