Malbikunarframkvæmdir á Suðurlandsvegi
Malbikunarframkvæmdir hefjast í kvöld á Suðurlandsvegi í Hveradalabrekku. Gert er ráð fyrir að verkið taki einn og hálfan sólarhring og mega vegfarendur búast við umferðartöfum á meðan á því stendur. Ökumenn eru minntir á að virða þær merkingar sem settar eru upp vegna framkvæmdanna og aka gætilega um vinnusvæðið. Hægt er að fara um Þrengsli til að komast hjá þeim töfum sem hugsanlega verða á umferðinni.