Nauðsynlegt að breyta Íbúðalánasjóði fyrir áramót 16. ágúst 2006 19:00
Seðlabankastjóri telur algjörlega nauðsynlegt fyrir efnahags- og hagstjórnina að gera breytingar á Íbúðalánasjóði fyrir áramót. Félagsmálaráðherra bíður eftir niðurstöðu starfshóps um málið. Seðlabankinn tilkynnti í morgun að stýrivextir yrðu hækkaðir um 0,5 prósentustig og eru þeir nú þrettán komma fimm prósent. Fram kom í máli Davíðs Oddssonar seðlabankastjóra að þótt ýmis merki væru um minnkandi þenslu, t.d. á húsnæðis- og bílamarkaði, skorti ótvíræðar vísbendingar um lækkun verðbólgu. Því hefðu stýrivextir verið hækkaðir. Seðlabankastjóri útilokar ekki frekari vaxtahækkanir en segist farinn að sjá fyrir endann á vaxtahækkunartímabilinu. Hann telji að það verði líklega eftir áramót. Fyrir liggja hugmyndir frá ríkisstjórninni um að breyta Íbúðalánasjóði í heildsölubanka og segir Davíð mikilvægt fyrir efnahagsstjórnina að hverfa ekki frá því. Það hafi mikla þýðingu að slíkum yfirlýsingum sé fylgt eftir og menn séu ekki að draga lappirnar af einhverjum ástæðum. Hann telji algjörlega nauðsynlegt að gera það fyrir áramót. Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra segist ekki geta sagt til um það hvort hann leggi fram frumvarp á haustþingi um breytingar á Íbúðalánasjóði. Hann bíði niðurstöðu starfshóps sem fari yfir málefni stofnunarinnar. Vonandi skili hann skýrslu fyrir næstu mánaðamót.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Erlent Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Innlent Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu Innlent Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Innlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Innlent Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla Innlent Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Innlent Fleiri fréttir Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Sjá meira