Viðskipti innlent

Landsbankinn spáir auknum stýrivaxtahækkunum

MYND/Einar Ólason

Landsbankinn hefur hækkað vexti sína, líkt og KB banki og Glitnir gerðu fyrr í dag. Greiningardeild Landsbankans bendir á að spá sín varðandi stýrivaxtahækkanir hafi verið nær lagi en spá samkeppnisaðilanna. Greiningardeildin hækkar einnig spá sína um áframhaldandi stýrivaxtahækkanir Seðlabankans.

Samkvæmt greiningardeildinni mun Seðlabankinn halda áfram að hækka vexti sína á meðan ekki liggi fyrir öruggar vísbendingar um lækkun verðbólgu. Seðlabankinn spái því að verðbólga muni ná hámarki á öðrum ársfjórðungi 2007. Í Peningamálum kemur fram að stýrivextir gætu þurft að hækka í allt að 18,5% til að Seðlabankinn nái verðbólguviðmiðum sínum. Greiningadeildin hefur því hækkað spá sína um stýrivaxtahækkanir og spá allt að 14% stýrivöxtum í september.

Greining Glitnis hefur einnig hækkað spá sína og spá því að stýrivextir verði 14,5% í nóvember.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×