NYSE og Euronext í eina sæng 3. júní 2006 06:30 Euronext Með kaupum NYSE í Euronext verður til fyrsta kauphöllin sem verður með starfsemi beggja vegna Atlantshafsins. Mynd/AP
Búið er að samþykkja tilboð kauphallarinnar í New York (NYSE) í Bandaríkjunum í samevrópska hlutabréfamarkaðinn Euronext og munu markaðirnir renna saman í einn. Með kaupunum verður til fyrsta kauphöllin sem hefur starfsemi beggja vegna Atlantshafsins. Höfuðstöðvar kauphallarinnar í Bandaríkjunum verða í New York en evrópsku höfuðstöðvarnar verða í París og Amsterdam. Markaðsvirði sameinaðrar kauphallar nemur 20 milljörðum Bandaríkjadala, jafnvirði 1.448 milljarða íslenskra króna. Kauphöllin í New York atti kappi við þýsku kauphöllina, Deutsche Börse, um kaup á Euronext, sem hefur starfsemi í Belgíu, Frakklandi, Hollandi og Portúgal. Bitbeinið stóð hins vegar um höfuðstöðvar markaðarins en stjórn Deutsche Börse krafðist þess að höfuðstöðvar Euronext yrðu færðar til Frankfurt í Þýskalandi. Meirihluti hluthafa í Euronext ákvað að ganga til samninga við NYSE, sem bauð hluthöfum samevrópska markaðarins 10 milljarða dali, 724 milljarða íslenskra króna, auk hluta í NYSE fyrir Euronext. Einn hlutur í NYSE mun jafngilda einum hlut í sameinaðri kauphöll, sem mun eftirleiðis heita NYSE Euronext.- jab
Mest lesið Runólfur á toppi tekjulistans yfir launahæstu embættismennina og forstjórana Viðskipti innlent Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Viðskipti innlent Afar ósátt við „óskiljanlega“ sekt Samkeppniseftirlitsins Viðskipti innlent Ólafur Ragnar með rúma milljón meira en næsti maður Viðskipti innlent Súpan með pappírnum innkölluð Neytendur Ráðin framkvæmdastjóri Frama Viðskipti innlent Kúgaðist og missti matarlystina við að finna pappír í súpunni Neytendur Taka sæti í framkvæmdastjórn Arctic Adventures Viðskipti innlent Tvö fjölbýlishús í stað bensínstöðvar á Háaleitisbraut Viðskipti innlent Kalt stríð sé í gangi á netinu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Facebook gagnrýnt fyrir að leyfa gervigreind að reyna við börn Vilja ekkert með áfengi nágranna sinna hafa Íslensku KFC-feðgarnir í Danmörku gjaldþrota Kynntu nýja útgáfu ChatGPT: „Þetta er eins og að tala við sérfræðing“ Stærsti olíu- og gasfundur olíurisa í 25 ár Tíu prósenta tollur á færeyskar vörur Leist ekki á hagtölur og rak yfirmann stofnunarinnar Hagnaðist um 2,2 billjónir króna Gengi Novo Nordisk steypist niður Samkomulagið það besta mögulega í erfiðum aðstæðum Stærsti olíufundur Evrópu í áratug í Póllandi Hampiðjan kaupir ástralskan kaðlaframleiðanda Japanskir bílaframleiðendur í skýjunum eftir tollasamkomulag Hagnaðurinn af Labubu sagður hafa aukist um 350 prósent Hótar þrjátíu prósenta tolli á ESB Hótar Kanadamönnum hærri tollgjöldum Forstjóri X hættir óvænt Kynna nýtt kerfi gegn „gervigreindarsópum“ SAS í sókn og kaupir 55 brasilískar vélar Sjá meira