Peningaskápurinn ... 29. desember 2006 06:00
406 millioner i krigskassenDanskir fjölmiðlar greindu margir hverjir frá því undir yfirskriftinni dagblaðastríðið (aviskrigen) að Nyhedsavisen hefði í „vopnabúri“ sínu á 406 milljónum danskra króna að byggja, eða sem nemur 5,1 milljarði íslenskra króna. 365 hf. og Baugur Group hafa nefnilega stofnað nýtt fjölmiðlafyrirtæki í Danmörku, Dagsbrun Media K/S. Félagið á Nyhedsavisen og rétt rúman meirihluta í dreifingarfyrirtækinu Morgendistribution Danmark A/S. Gunnar Smári Egilsson er forstjóri fyrirtækisins sem meðal annars mun skoða útgáfu á fríblöðum í Norður-Evrópu og Bandaríkjunum. Í skrifum um vopnabúr Dagsbrun Media er vísað til þess að hlutafé félagsins nemur þessum 406 milljónum danskra króna en það er sagt munu duga til reksturs og fjárfestinga í Danmörku næstu þrjú árin. Reyktur Íslandslax í Frakklandi...Labeyrie, dótturfélag Alfesca í Frakklandi, hefur hafið sölu á íslenskum eldislaxi undir sínum merkjum. Labeyrie er eitt sterkasta vörumerkið á frönskum matvörumarkaði. Laxinn var seldur í frönskum verslunum fyrir hátíðarnar og segir Alfesca viðtökur hafa verið góðar. Labeyrie kaupir laxinn af HB Granda og Samherja. Með þessu var Labeyrie fyrst fyrirtækja til að markaðssetja reyktan lax í Frakklandi eftir upprunalandi. Hingað til hefur laxinn komið frá Noregi, Skotlandi og Írlandi. Gangi salan á íslenska laxinum vel segir Alfesca það eiga að vera góðar fréttir fyrir laxeldi hér. Alfesca seldi tæp 16 þúsund tonn af laxi á fjárhagsárinu 2005–2006.
Mest lesið Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Viðskipti innlent Isavia má rukka í rennuna eftir allt saman Neytendur Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Viðskipti innlent Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Viðskipti innlent Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Viðskipti innlent Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Viðskipti innlent Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Viðskipti innlent Þakefni sem standast rokið, rigninguna og tímans tönn Samstarf Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Viðskipti innlent Fjölmenntu á vorviðburð Málningar og Slippfélagsins Samstarf Fleiri fréttir Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Arion banki hækkar vexti Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Sigrún ráðin aðalbókari Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Sjá meira